Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/31055
Daglegur rekstur íþróttafélaga er orðinn umfangsmeiri en áður fyrr. Erfitt er fyrir sjálfboðaliða að standa undir þeim kröfum og væntingum sem gerðar eru til þess að íþróttafélag sé rekið á árangursríkan hátt. Mörg félög hafa ráðið til sín framkvæmdastjóra en samstarf deildarstjórna og framkvæmdastjóra hefur ekki verið skilgreint nægilega vel.
Markmið verkefnisins er að (1) rannsaka samstarf framkvæmdastjóra og deildarstjórna í íslenskum íþróttafélögum.
(2) Ásamt því að kortleggja helstu viðfangsefni og verkefni framkvæmdastjóra og deildarstjórna í þeim tilgangi að fá innsýn
inn í hvernig þessu samstarfi er háttað í daglegu starfi og skilgreina helstu hlutverk deildarstjórna í íþróttafélögum.
Eigindleg aðferð var notuð til þess að rannsaka markmið
verkefnis. Hálfstöðluð viðtöl (n=6) við bæði framkvæmdastjóra og stjórnarmenn mismunandi íþróttagreina gáfu afar áhugaverða innsýn sem gerð verður grein fyrir í þessu verkefni. Aðal niðurstaðan er sú að samstarf framkvæmdastjóra og deildarstjórna
er mismunandi eftir félögum. Það sem hefur mest áhrif eru hefðir félagsins og gæði samskipta þeirra á milli. Niðurstöður verkefnisins munu gagnast framkvæmdastjórum og stjórnum íþróttafélaga við skipulag starfs þeirra og hjálpa stjórnarmeðlimum við að takast á við vandamál sem hugsanlega koma upp.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni_Kolbrún_Helga_Hansen.pdf | 560,68 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |