is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/31092

Titill: 
  • Að læra stærðfræði er leikur einn
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta verkefni er lokaverkefni okkar til B.ed. prófs frá Hug- og félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri. Markmiði með þessu verkefni er að sýna hvernig hægt er að nota leik í stærðfræðinámi ungra barna og vekja áhuga þeirra og efla þekkingu á stærðfræði og stærðfræðihugtökum. Sýnt er fram á að leikur er börnum nauðsynlegur og að þau læra margt í gegnum hann. Meðal annars hvernig hægt er að flétta saman líf og leik til að efla þroska og námsáhuga barna. Oft á tíðum gerum við okkur ekki grein fyrir því að börn nota stærðfræðihugtök oft á dag og þess vegna er um að gera að grípa tækifærið þegar það gefst. Við sýnum líka hvernig hægt er að skapa aðstæður í leikskólanum og hvað leikskólakennarar geta gert til að aðstoða börnin við námið. Einnig komum við inná aðferð sem nýverið er farið að nota og heitir Stærðfræðikennsla byggð á skilningi barna. Þar nota börnin sína eigin aðferð til að leysa stærðfræðiþrautir sem settar eru fram í örsögum sem tengjast daglegu lífi. Þau verða svo að útskýra hvernig þau leysa þrautina.
    Flest öll börn hafa gaman af því að spila og þess vegna ákváðum við að búa til spil, sem fylgir þessu verkefni, sem byggir á hugmyndafræði þessarar kennsluaðferðar. Einnig er í spilinu hreyfing þar sem börn eiga oft erfitt með að halda einbeitingu og sitja kyrr.

  • Útdráttur er á ensku

    This project is our final assignment for B.Ed. degree from department of Social and Social Sciences at the University of Akureyri. The aim of this project is to show how to use play in mathematics education of young children, to raise their interest and to increase knowledge of math and mathematical concepts. It is shown that games are essential to children and they learn a lot through it. For example, how we mix together play and education to enhance children's development and learning interests. Often, we do not realize that children use mathematical concepts often a day, we need to grab the opportunity when we see it. How can conditions be created in preschool and what preschool teachers can do to assist the children to learn. We do also include a method that has recently been used and is called Cognitively guided instruction, where the children use their own method to solve mathematical problems that based on daily life. The children do also have to explain how they solve the puzzle.
    Most children enjoy playing and therefore we decided to create card game which follows our project, based on the ideology of this teaching method. There is also activity included in the card game because children often find it difficult to keep focused and sit down for a long time.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 30.04.2038.
Samþykkt: 
  • 12.6.2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/31092


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Að læra stærðfræði er leikur einn.pdf685.6 kBLokaður til...30.04.2038HeildartextiPDF
Efnisyfirlit.pdf188.46 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf208.65 kBOpinnPDFSkoða/Opna