en English is Íslenska

Thesis (Master's)

Reykjavík University > Tæknisvið / School of Technology > MEd/MPM/MSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþróttafræðideild -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/31306

Title: 
  • Title is in Icelandic Glerþak í verkefnastjórnun : hæfniþátturinn fjármál notaður sem mælistika á kynjamun í faginu
Degree: 
  • Master's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Markmið rannsóknarinnar var að nota hæfniþáttinn fjármál eins og hann er settur fram í Grunnviðmiðum IPMA um hæfni verkefnastjóra, ICB4, sem mælistiku á kynjamun í verkefnastjórnun. Einnig er kannað hvaða leiðir innan hæfniþáttarins fjármál eru hluti af starfi íslenskra verkefnastjóra og hvaða áhrif vottunarstig hefur á notkun hans. Til þess að kanna þetta var sendur út megindlegur spurningalisti til allra IPMA-vottaðra verkefnastjóra á Íslandi.
    Niðurstöður benda til þess að karlar komi í mun meira mæli að fjármálatengdum hæfniþáttum en konur og fer kynjamunurinn stigvaxandi eftir því sem vottunarstigið er hærra. Munurinn verður að hluta til skýrður með lægra vottunarstigi kvenna en karla en þó alls ekki að öllu leyti. Þetta styður við þá kenningu að konur séu fastar í vítahring smærri og ódýrari verkefna og fái síður tækifæri til þess að spreyta sig á umfangsmeiri verkefnum en karlar.
    Niðurstöður rannsóknarinnar benda sömuleiðis til þess að íslenskir verkefnastjórar komi frekar að kostnaðarhlið þeirra verkefna sem þeir stýra en síður að fjármálatengslum við skipuheildina eða þróun sviðsmynda fyrir fjárhagsramma og að þeir séu almennt í litlum tengslum við fjármögnun þeirra verkefna sem þeir stýra.

Accepted: 
  • Jun 18, 2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/31306


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Glerthak-i-verkefnastjornun.pdf810.06 kBOpenComplete TextPDFView/Open