is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Hólum > Ferðamáladeild > BA verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/31335

Titill: 
  • Norðurljósaferðir : upplifun og væntingar ferðafólks
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Norðurljósferðir njóta sívaxandi vinsælda í vetrarferðamennsku á Íslandi og virðist vera lítið lát á. Leitað var svara um hvaða væntingar ferðafólk hefur til norðurljósaferða, hvort myrkurgæði, sögur og leiðsögn hafi áhrif á upplifun þeirra. Markmið rannsóknar var að meta hvaða þættir hefðu áhrif á upplifun ferðafólks á Akureyri í norðurslóðaferðum og hvaða hlutverk leiðsögumaður hefur í norðurljósaferð. Farið var í norðurljósaferðir með ferðaþjónustufyrirtækjum sem bjóða upp á slíkar ferðir. Tekin voru eigindleg viðtöl við ferðafólk og þau spurð um upplifun þeirra innan ákveðins viðtalsramma. Viðtölin voru greind niður í fjögur þemu sem voru um væntingar þeirra, myrkurgæði, upplifun og sögur um norðurljós. Síðan voru dregnar saman helstu niðurstöður rannsóknar en þar kom fram að ferðafólk virtist gera sér grein fyrir að ekki var hægt að ganga að því vísu að sjá norðurljós, myrkurgæði virtust ekki hafa áhrif á upplifun þeirra og fæstir hafa heyrt sögur um norðurljós fyrr en komið var til Íslands. Það má því draga af því þá ályktun að markaðssetning norðurljósaferða á Akureyri virðist gefa raunsanna mynd af útkomu ferða.
    Lykilorð: Aurora Borealis, norðurljós, myrkurgæði, upplifun, leiðsögn, norðurljósasögur.

  • Útdráttur er á ensku

    Northern lights tours are increasing in popularity in winter tourism in Iceland and the interest only seems to be growing. A survey was conducted on the expectations of travelers for Northern Lights tours, exploring various variables such as whether quality of darkness, importance of stories told by the guide and the importance of the competency of the tour guide affected their experience. The purpose of the study was to assess which factors influenced the experience of travelers and what role a tour guide has in the viewing of the northern lights. A tour of the Northern Lights was conducted with tourism companies that offer such tours. Qualitative interviews with tourists were conducted, and they were asked about their experience within a certain interview guide. The interviews were analyzed in four themes that centered around their expectations, darkness, experiences and stories about the northern lights. The interviews revealed that travelers seemed to realize that it was impossible to see the northern lights in every tour, darkness seemed to have no impact on their experience, and few had heard stories about the northern lights before coming to Iceland. It can therefore be concluded that the marketing of northern lights in Akureyri seems to give a realistic picture of the outcome of the experience of a customer.
    Key words: Aurora Borealis, Northern Lights, quality of darkness, experience, guide, stories of Northern Lights.

Samþykkt: 
  • 18.6.2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/31335


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BAR3112_V2018_Ingibjörg_Smáradóttir_Skemman_2018.pdf1.95 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna