Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/31364
Verkefnið er hönnun á vagni til þess að bera báta sem smíðaðir hafa verið hjá Rafnar skipasmíðastöð í Kópavogi.
Bátarnir sem Össur Kristinsson hefur hannað undir merkjum Rafnar / ÖK hull eru með sérhannaða uppbyggingu skrokks. Undir þeim miðjum er kjölur sem veldur vandræðum þegar notast á við vagna sem smíðaðir hafa verið undir hefðbundna báta.
Með okkar útfærslu höfum við séð við þessu vandamáli þannig að bæði er hægt að sigla í vagninn úr sjó eða hífa bátinn beint á hann.
Vagninn er hannaður og útfærður með tilliti til aksturs á íslenskum þjóðvegum samkvæmt reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr.822/2004
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Lokaskýrsla Háfur 5000 A4.pdf | 8,29 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| Staðf á lokun lokaverkefnis Háfur 5000.pdf | 403,7 kB | Opinn | Beiðni um lokun | Skoða/Opna |