Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/31446
”Hjarta völundarhússins: spunaspil” er verkefni til B.Ed.-prófs í grunnskólakennslufræðum við Háskóla Íslands. Hjarta völundarhússins er spunaspil sem hægt er að nota í kennslu og er ætlað sem spunaspil fyrir nemendur á eldra stigi grunnskóla. Spilið byggir á borðspilum, spuna og sögu. Markmið verkefnisins er tvíþætt; annars vegar að búa til nýtt spunaspil sem sækir innblástur frá spunaspilinu Pathfinder ásamt hönnun reglubæklings og skrímslabókar fyrir nemendur á elsta stigi grunnskóla. Hins vegar að vekja áhuga grunnskólakennara á nýtingu spunaspilsins til kennslu.
Í þessari greinargerð er sýnt fram á kennslufræðilegt gildi þeirra þátta sem mynda spunaspilið, þ.e. borðspil, spuni og sögur. Fjallað verður um hvernig spunaspil getur hjálpað nemendum sem eiga erfitt með að ná tökum á hæfnisviðmiðum námsþátta aðalnámskrá grunnskóla. Fjallað verður um hvað fræðimenn og rannsóknir þeirra segja um borðspil og nýtingu þeirra í kennslustund. Skoðað er spunaspil og hvernig þeim er háttað, hvað það er sem þátttakendur eru að fara í gegnum þegar þeir spila spunaspil og hvaða námsþætti þátttakendur efla á því að spila spunaspil. Höfundur notar sína eigin reynslu á spunaspilum og kennslu og ber hana saman til þess að hvetja aðra grunnskólakennara til að kynna sér spunaspil og notkun þeirra í kennslustundum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerðin.pdf | 1,6 MB | Open | Report | View/Open | |
Reglubæklingur.pdf | 1,47 MB | Open | Hjarta völundarhússins - Reglubæklingur | View/Open | |
Skrímslabók.pdf | 665,55 kB | Open | Hjarta völundarhússins - Skrímslabók | View/Open | |
Persónublað.pdf | 591,09 kB | Open | Hjarta völundarhússins - Persónublað | View/Open | |
Yfirlýsing lokaverkefnis.pdf | 205,65 kB | Locked | Yfirlýsing |