en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/3144

Title: 
  • Title is in Icelandic Myndmenntakennsla í grunnskólum : myndmennt á fræðilegum grunni
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Viðhorf til kennslu í grunnskólum eru afar margbreytileg og á það ekki síður við um list- og verkgreinakennslu en kennslu annarra námsgreina almennt. Hugsjónir og hugmyndir manna eru margbreytilegar og mismunandi er hvað hver listgreinakennari hefur að leiðarljósi við skipulag listgreinakennslu. Líta má á myndlist sem heildræna námsgrein þar sem undirstöðu greinarinnar eru lagðir inn með verkefnum og umræðum. Einnig má líta á myndlist sem sjónræna kennslu þar sem meðal annars er verið að kenna nemendum hvernig á að lesa úr skilaboðum úr umhverfinu, að vinna að skapandi lausnarleit þar sem nemendur finna lausnir á verkefnum á skapandi og frumlegan máta. Aðalnámskrá grunnskóla hefur sínar áherslur sem ber að fara eftir og hafa sem viðmið, þar á meðal eru áfangamarkmið og lokamarkmið fyrir hverja grein. DBAE – fagmiðuð myndlistakennsla er leið til þess að nálgast myndmenntakennslu í grunnskólum og lýtur hún að fjórum grunnfögum listgreinarinnar, listsköpun, listrýni, listasaga og fagurfræði.
    Í leit að nálgun í myndmenntakennslu hefur DBAE vítt inntak og heildræna leið sem nær yfir alla þá þætti sem nauðsynlegt er að kenna til að dýpka sköpun, skilning, skynjun og velþóknun nemenda á listum, sem eru höfuðmarkmið DBAE. Í listsköpun er reynt að vinna úr hugmyndum, tilfinningum eða reynslu á úthugsaðan hátt í gegnum margvíslega listmiðla. Í listrýni er verið að túlka, meta og finna kenningar um listaverk til þess að auka skilning á þeim og velþóknun. Listasaga er kennd til þess að auka velþóknun og skilning á listum og listamönnum í gegnum tímans ás. Fagurfræði er heimspekigrein sem snýst um að upplifa fagurfræðilega reynslu og að spyrja spurninga varðandi listaverk, listamenn og list til þess að skilja eðli listarinnar. Á grunni fagmiðaðrar myndlistakennslu þarf námsmat í listum að vera margþætt til þess að hægt sé að meta þessa þætti og alhliða ferlismappa er gagnleg þar sem meðal annars listaverk nemenda, hljóð- eða myndbandsupptökur af nemendum að tala um listaverk, listrýniverkefni þar sem nemendur skoða umsagnir annarra og gera sínar eigin umsagnir um verk og fleira.

Accepted: 
  • Jul 1, 2009
URI: 
  • URI is in Icelandic http://hdl.handle.net/1946/3144


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
elinberglind_lokaritgerd_fixed.pdf212.91 kBOpenMyndmenntakennsla á fræðilegum grunni - fagmiðuð myndlistakennslaPDFView/Open