Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/31458
Eftirfarandi skrif eru lokaverkefni höfundar til B.Ed prófs í grunnskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Verkið samanstendur af greinargerð og verkefnasafninu „Herbergið mitt“ sem er ætlað að styðja við nám á unglingastigi grunnskólans í námsgreininni hönnun og smíði. Megintilgangur verkefnasafnsins er að vekja áhuga unglinga á hönnunar-‐ og smíðavinnu með því að sníða námið að áhugasviðum þeirra. Verkefnasafnið tengist þörf unglinga fyrir eiga sér eigið herbergi og geta mótað það að vild. Í verkefnasafninu eru átta verkefni sem höfundur vonast til að verði nemendum tilefni til frekari verkefnavinnu er tengist herbergi þeirra.
Í greinargerðinni er áhersla lögð á að skoða þróun námsgreinarinnar hönnun og smíði og finna þær stoðir sem geta varðveitt og eflt námsgreinina í íslenskum grunnskólum, með sérstakri áherslu á unglingastig. Í þessu skyni verður stuttlega fjallað um sögu námsgreinarinnar og hugmyndalegan bakgrunn og hlutdeild hönnunar og smíði í Aðalnámskrá grunnskóla gerð skil. Ennfremur er fjallað um mikilvægi sköpunarþáttarins í verklegu skólastarfi og skoðað hvernig hann getur þroskað nemendur og eflt starf smíðakennarans. Í framhaldi af þessari umfjöllun er stuttlega fjallað um gildi handverks í uppeldi og menntun grunnskólanemenda, með tilliti til námskenninga Dewey og hugmynda kennaranna John Holt og John Taylor Gatto, auk þess sem vikið verður að unglingum sérstaklega. Í lokaorðum greinargerðarinnar dreg ég efni hennar stuttlega og tengi við innihald og möguleika námsgreinarinnar hönnun og smíði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð - Jenný skemman .pdf | 289.64 kB | Lokaður til...30.05.2040 | Greinargerð | ||
Verkefnahefti - Herbergið mitt - Lokaskil.pdf | 5.89 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
yfirlýsing pdf.pdf | 114.11 kB | Lokaður | Yfirlýsing |