en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/31476

Title: 
  • Title is in Icelandic Stærðfræði og tónmennt : samþætting stærðfræði- og tónmenntakennslu á yngsta stigi í grunnskólum
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Þessi lokaritgerð er unnin til B.Ed. gráðu við kennaradeild menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Ritgerðin fjallar um þá möguleika sem liggja í samþættri kennslu í stærðfræði- og tónmenntum með nemendum á yngsta stigi í grunnskólum. Þrátt fyrir að stærðfræði og tónlist séu ekki jafn tengd taugafræðilega og oft er haldið fram þá er ýmislegt sem mælir með því að greinarnar tvær séu leiddar saman í samþættri kennslu. Ýmis viðfangsefni stærðfræðinnar liggja betur fyrir nemendum sem hafa fengið kennslu í tónlist og tónlist getur haft margvísleg jákvæð áhrif á skilning nemenda. Við samþættingu námsgreina þarf að hafa í huga að hún sé báðum greinum til hagsbóta. Bæði stærðfræði og tónlist byggja á táknkerfum og tungumálum og mynstur og regluleiki er einkennandi fyrir báðar greinar. Sem dæmi um tengingu greinanna má nefna að almenn brot finnast víða í nótnaskrift. Í ritgerðinni eru settar fram nokkrar hugmyndir að leiðum til samþættrar kennslu greinanna með börnum á yngsta stigi í grunnskólum. Hægt er að fara í leiki með hljóð og mynstur og styðja þannig við stærðfræði- og tónlistarlegan orðaforða nemenda.

Accepted: 
  • Jul 4, 2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/31476


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Lokaverkefni- stærðfræði og tónmennt. sob24.pdf1.18 MBOpenComplete TextPDFView/Open
Yfirlýsing.pdf189.35 kBLockedYfirlýsingPDF