is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/31497

Titill: 
  • Gefa fræði af sér gæði? : viðtöl við leiðbeinendur í sértæku hópastarfi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessa verkefnis var að skoða hvaða þættir skapa gæði í hópastarfi. Lögð var áhersla á það hvort gæði og fagmennska starfsins aukist með fræðilegri þekkingu leiðbeinenda í hópastörfum. Verkefnið byggist upp á fræðilegum köflum um nám, hópakenningar, hópastarf og leiðbeinendur. Þessir kaflar eru svo tengdir við eigindlega rannsókn sem höfundur gerði um leiðbeinendur í sértæku hópastarfi sem hafa mismunandi reynslu og þekkingu.
    Leitast var við að svara spurningunni hvaða þættir það séu sem skapi gæði í sértæku hópastarfi og enn fremur hvort gæði og fagmennska aukist þegar leiðbeinandi hefur fræðilega þekkingu á viðfangsefninu. Höfundur tók hálfopin einstaklingsviðtöl við tvær konur og tvo karla sem öll hafa reynslu af því að stýra sértæku hópastarfi. Tvö þeirra þekkja fræðin á bak við hópastörf vegna háskólamenntunar sinnar en hin tvö þekkja ekki fræðin.
    Viðtölin voru greind og kom í ljós að mikil óvissa getur myndast þegar leiðbeinandi í hópastarfi hefur ekki fræðilega þekkingu á viðfangsefninu. Þessi óvissa virðist ekki vera til staðar hjá þeim sem þekkinguna hafa. Þegar farið var yfir niðurstöður rannsóknarinnar var hægt að draga þá ályktun að með fræðilegri þekkingu skapist aukin gæði og fagmennska í sértæku hópastarfi þar sem óvissa leiðbeinanda breytist í öryggi.

Samþykkt: 
  • 5.7.2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/31497


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Gefa_fraedi_af_ser_gaedi?_Brynja_Helgadottir.pdf930.18 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
yfirlysing_lokaverkefni_Brynja_Helgadottir_06.05.2018.pdf96.69 kBLokaðurYfirlýsingPDF