Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/31547
Í þessari heimildaritgerð er fjallað um áhrif eineltis á gerendur og framtíðarhorfur þeirra skoðaðar. Gerendur eru ekki einsleitur hópur og til að átta sig betur á hópnum sem slíkum og umfangi eineltis er fyrst fjallað almennt um einelti, þróun á rannsóknum og birtingamyndir eineltis. Kenningar um mögulegar ástæður fyrir einelti af hálfu gerenda eru skoðaðar og hvað viðheldur hegðuninni. Því næst er fjallað um tegundir gerenda og tengingu þeirra við ýmsa áhættuhópa en þeir tengjast áhættuhópum frekar en þeir sem ekki tengjast einelti. Að lokum er fjallað um inngrip í eineltismálum og hvernig megi vinna með gerendur til að sporna við einelti og minnka líkur gerenda á að lenda í áhættuhópum. Ritgerðin er unnin upp úr í heimildum eftir helstu fræðimenn í eineltisfræðum á Íslandi og erlendum rannsóknum.
Lykilorð: gerendur, einelti, afleiðingar, inngrip, framtíðarhorfur
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Framtíðarhorfur gerenda í eineltismálum, tilbúið (2).pdf | 1,1 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
yfirýsing(juliaogsteinunn)-1.pdf | 151,44 kB | Lokaður | Yfirlýsing |