Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/31555
Í þessari ritgerð verður farið yfir helstu uppeldisaðferðir og fjallað um hvernig leiðandi uppeldi hefur jákvæð áhrif á þroska og velferð barna. Skýrt verður frá hvernig leiðandi uppeldishættir geta verið verndandi þáttur gegn áhættuhegðun barna og ungmenna, og hvernig foreldrar geta nýtt sér þessa aðferð við uppeldi á börnum sínum. Leiðandi uppeldishættir hafa, samkvæmt fræðimönnum, mikið forvarnargildi gegn áhættuhegðun barna og ungmenna. Mikilvægt er að foreldrar séu meðvitaðir um það hlutverk sem þeir gegna í lífi barna sinna og séu tilbúnir til að gera sitt besta til þess að taka virkan þátt í lífi barna sinna. Áhættuhegðun er hegðun sem bæði getur byrjað sem hegðunarvandamál í barnæsku og aukist þegar barnið eldist eða sem hegðun sem fyrst kemur fram á unglingsárunum. Því er mikilvægt að stuðla vel að uppeldinu frá fyrstu árum, og tilvalið að nýta sér leiðandi uppeldishætti í því skyni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaeintak.pdf | 1,03 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
handbok.pdf | 718,11 kB | Opinn | bæklingur | Skoða/Opna | |
2016_03_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_29.03.16.pdf | 184,1 kB | Lokaður | Yfirlýsing |