Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/31621
Í ritgerðinni hafa verið teknar saman íslenskar miðaldasögur sem segja frá sifjaspellum. Markmiðið með samantektinni er að skoða í hvaða mynd sifjaspellin birtast í sögunum, og með það fyrir augum er gerð stutt úttekt á efni hverrar sögu fyrir sig. Að lokum eru frásagnirnar bornar saman eftir því hvernig tengslum er háttað á milli þeirra sem í hlut eiga, það er hvort söguhetjurnar eru systkini, feðgin eða (stjúp)mæðgin.
Aðaláhersla verður lögð á að greina frásagnir sem fela í sér sifjaspell í fimm sögum. Fjórar þeirra eru fornaldarsögur (Völsunga saga, Hrólfs saga kraka, Úlfhams saga og Hjálmþérs saga og Ölvers), enda langalgengast að minni sem fela í sér sifjaspell sé að finna sögum sem tilheyra þeirri bókmenntagrein. Einnig verður til skoðunar ein konungasaga (Jómsvíkinga saga), en að auki verður litið til sagna úr ýmsum áttum sem fela í sér tilbrigði af sifjaspellafrásögnum. Þessari samantekt er ætlað að varpa ljósi á eðli og einkenni sifjaspella í íslenskum miðaldabókmenntum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Anna Heiður BA-ritgerð.pdf | 720.06 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
Anna Heiður - yfirlýsing.pdf | 201.67 kB | Locked | Yfirlýsing |