is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/3165

Titill: 
  • Umhyggja í skólastarfi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Umfjöllunarefni þessarar ritgerðar er umhyggja. Rýnt verður í ýmsar kenningar um umhyggju
    frá nokkrum fræðimönnum og má þar t.d. nefna Nel Noddings, Sigrúnu Aðalbjarnardóttur og
    Lisu Goldstein. Umhyggja er víðförul og getur þýtt margt, allt frá því að vera hlýtt faðmlag í
    það að beina barni á rétta braut. Ætla má að ekki sé nóg að kenna hinum fullorðnu að sýna
    umhyggju, ungviðið þarf einnig að læra umhyggju, læra að sýna hana og að taka á móti henni.
    Ég tek það einnig fyrir hversu mikilvægt það er fyrir kennara dagsins í dag, leikskólaog
    grunnskólakennara að sýna umhyggju og að kenna umhyggju. Börnin eru okkar framtíð og
    með umhyggjusöm börn í okkar framtíð, þá á heimurinn líklegast eftir að verða betri.
    Kennarar eru vissulega með börnunum stóran hluta dagsins, en foreldrar þurfa einnig að huga
    að þessu. Foreldrar sem góðar fyrirmyndir eru góðir kennarar.
    Tilgangur ritgerðarinnar er að fá alla þá sem starfa eða tengjast börnum á einhvern
    hátt, til að hugsa um umhyggju og þeirra þátttöku í henni. Umfjöllun mín leiddi það í ljós að
    umhyggja er nauðsynlegur hluti af lífi hvers barns. Leikur er einnig stór hluti af umhyggju
    barnsins. Börnin læra mikið í gegnum leikinn og með því að gefa þeim réttu tækifærin þá er
    hægt að kenna mikið. Leikurinn er vissulega mismunandi eftir aldri og þroska og verðum við
    að hafa það í huga.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 3.7.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3165


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lokaritgerd.pdf187.02 kBLokaðurUmhyggja í skólastarfiPDF