en English is Íslenska

Thesis (Master's)

University of Iceland > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/31673

Title: 
  • Title is in Icelandic Samræður í stað spurninga : samskipti kennara og barna í samverustundum
  • Discussions instead of questioning : interactions between teachers and children in circle time in preschool
Degree: 
  • Master's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Samverustundir, þar sem börn á einni deild safnast saman ásamt leikskólakennara, eru veigamikill þáttur í starfi flestra leikskóla. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna viðhorf leikskólakennara til samverustunda og þátttöku barnanna í þeim. Þau fræði sem rannsóknin byggir á eru rannsóknir fræðimanna á samskiptum milli kennara og barna í leikskóla. Þar eru þau samskipti helst talin gæðasamskipti sem innihalda ákveðið jafnvægi milli fullorðinna og barna og að hlustað sé eftir tjáningu barnanna. Einnig er stuðst við rannsóknir um menntun barna þar sem þátttaka og reynsla er talin forsenda fyrir námi þeirra.
    Rannsóknin var eigindleg tilviksrannsókn þar sem gagna var aflað með viðtölum við þrjá leikskólakennara og upptökum úr samverustundum hjá þeim sömu. Í viðtölunum var meðal annars leitað eftir viðhorfum leikskólakennaranna til samverustunda, tilgangs þeirra og framkvæmdar.
    Verkið getur nýst kennurum við að endurskoða tilgang og gildi samverustunda, skipulag og framkvæmd þeirra. Það má taka þá skoðun fræðimanna alvarlega að það henti ungum börnum að fræðast í gegnum samræður og þátttöku, en spurningar sem hafa þann eina tilgang að kanna þekkingu barna eigi hvorki erindi við mjög ung börn né þjálfi þau í að taka þátt í lýðræðislegu skólastarfi eins og lögð er rík áhersla á í aðalnámskrá leikskóla (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2011).
    Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að sýn leikskólakennara á tilgang samverustunda sé ómeðvituð fyrir utan það meginmarkmið að vera í samskiptum við börnin. Börnin höfðu ekki mikil áhrif á það hvað fór fram í samverustundum og þátttaka þeirra var að alla jafna frekar lítil. Þátttaka barnanna fólst í samræðu og söng en þó var tímanum að miklum hluta varið í að svara spurningum sem leikskólakennari hafði ákveðið. Sjaldgæft var að um flæðandi og gagnvirkar samræður væri að ræða sem höfðuðu til barnanna og kölluðu eftir spurningum frá þeim.

  • Circle time, shared time period in preschool, are seen as important in most preschools in Iceland. Nevertheless, the purpose of circle time does not seem to be notably discussed among preschool teachers. The purpose of this study was to examine the teachers' attitude to circle times and children's participation in it. The literature presented discussed research about interactions between teachers and children in preschool. In the literature the high quality interactions are thought to be the ones who contain balance between adults and children and that the adults notice the childrens expressions. The literature presents studies on childrens education where participation and experience are the presupposition.
    The data in this qualitative case study is based on interviews with three preschool teachers who work with four and five year old childrens and videos from circle times leaded by the same teachers. The teachers' shared their views to cicle time, its purpose and the structure.
    The findings suggest that the teachers attitude to the purpose of circle times is not clear except for interaction. The children did exert an minimum influence and participation in circle time. The children participation consist in discussing and singing but mostly in answering the teachers' questions. Flexible discussing that appealed to the children and invited their questions welcome were rare.
    This study could be useful for teachers to revise the purpose and the structure af circle time. The theoreticians opinions that the method to educate young children is through discussing and participation should be taken seriously. But to examine their knowledge by questioning them is inappropriate and does not bring along their capacity to participate in democratic work in preschool as the Icelandic National Curriculum for Preschools dictates.

Accepted: 
  • Aug 24, 2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/31673


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Aðalheiður Meistararitgerð.pdf970.34 kBOpenComplete TextPDFView/Open
Lokav. A.S.S. Háskólabókasafn.pdf131.35 kBLockedYfirlýsingPDF