Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/31704
Í þessari MA rannsókn voru gripir og líkamsleifar „fjallkonunnar“ svokölluðu, sem fundust við Afréttarskarð á Austurlandi í björgunaruppgreftri árið 2004, skoðaðar út frá síð-fræðilegum (e. post-disciplinary) aðferðum þar sem vísbendingum er fylgt og farið yfir „landamæri“ fræðigreina til að svara því af hvaða uppruna „fjallkonan“ var, hvaða félagslega hlutverki hún gegndi og hvort um kuml var að ræða. Niðurstöður rannsóknarinnar eru eftirfarandi:
Kuml: Það er hugsanlegt að „fjallkonan“ hafi verið lögð í skriðugröf, en meiri líkindi að það sé ekki um kuml að ræða þar sem engan manngerðan umbúnað var að finna á uppgraftarstað.
Félagslegt hlutverk/klæðnaður/kyn: Klæðnaður „fjallkonunnar“ virðist nokkuð hefðbundinn miðað við búnað kvenna á víkingaöld, en perlufjöldinn gerir fundinn að langtum ríkasta kvenfornleifafundi á Íslandi. Þó að perlufjöldi sé mikill, sem gefur hugleiðingum um völvu/seiðmann byr undir báða vængi, verður ekki hægt að fullyrða um að það hafi verið hlutverk „fjallkonunnar“, né fullyrða að öðru leyti um félagslegt hlutverk hennar. Ekki er heldur hægt að skera úr um með fullri vissu hvort þessi einstaklingur var karlkyns eða kvenkyns en túlka má mikinn fjölda perla og brjóstnælur sem vísbendingu um kvenkyn.
Uppruni og aldur: „Fjallkonan“ var 20–30 ára þegar hún lést. Hún var ekki fædd á Íslandi og á fyrstu sex árum ævinnar borðaði hún blöndu af sjávar- og landfæði. Framtennur „fjallkonunnar“ virðast skóflulaga, sem gæti gefið vísbendingu um uppruna af hinum mongólska kynstofni. Þó er ekki hægt að fullyrða um þá greiningu þar sem nauðsynlegt hefði verið að greina heilar tennur og rótarkerfi til að fá niðurstöðu. „Fjallkonan“ virðist, út frá gerðfræði skartgripa og ísótóparannsóknum að dæma, hafa verið uppi um miðja tíundu öld.
In this MA thesis the artefacts and the human remains of the „Mountain Lady“, that were found in an rescue excavation at Afrettarskard in East-Iceland in 2004, were researched from an „post-discipline“ method, where evidence is followed past the „borders“ of disciplines, to answer the questions of the origin of the „Mountain Lady“, the social role she played and if the finding could be categorised as a grave. The conclusion from the research is the following:
Grave: There is a possibility that the „Mountain Lady“ was buried in a „scree and rock grave“, but since there is no evidence of a manmade structure the conclusion is that this is most likely not a grave.
Role/clothing/gender: The „Mountain Lady“ seems to have been dressed in rather typical clothes for the Viking Age. The quantity of beads alone does not indicate association with female sorceress (völva), sorcerer or other role in Viking Age society, but it can indicate a female gender, as well as the oval brooches. The high quantity of beads compared to graves from Viking Age Iceland makes the find of the „Mountain Lady“ one of the richest female find of the period there.
Origin and age: The „Mountain Lady“ was 20–30 years old when she died. She was not born in Iceland. In the first six years of her life, she fed both on marine and terrestrial diet. The incisors of the „Mountain Lady“ show some evidence to be „shovel-shaped“ which could indicate an Mongoloid origin, but the analysis cannot be confirmed since an analysis of roots and whole teeth would have to be performed. The „Mountain Lady“ seems, judging from artefacts and isotopes, to have been living in the middle of 10th Century.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Vidauki a.pdf | 13.51 MB | Open | Appendix | View/Open | |
Viðauki c.pdf | 232.97 kB | Open | Appendix | View/Open | |
Viðauki d.pdf | 137.71 kB | Open | Appendix | View/Open | |
Skemman_yfirlysing_16Rannveig.pdf | 2.19 MB | Locked | Yfirlýsing | ||
MA_ritgerd_RannveigTh.pdf | 51.04 MB | Open | Complete Text | View/Open | |
Viðauki b.pdf | 236.2 MB | Open | Appendix | View/Open |