Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/31736
Konan á nítjándu öldinni hét rit sem Margaret Fuller skrifaði og gaf út árið
1845. Ritið hefur löngum verið kallað fyrsta femíníska verk Bandaríkjanna en höfundur
þess hefur gleymst svolítið í sögunni. Það voru miklar hræringar á meðal undirokaðra
þjóðfélagshópa í Bandaríkjunum á æviárum Fullers og texti hennar er skrifaður beint
inn í það samhengi. Menntað fólk vildi breyta stöðluðum venjum samfélagsins og
aftengja sig frá úreltri hugmyndafræði. Meðal þess sem Fuller vildi umbylta var staða
konunnar í samfélaginu og skrifaði hún bókina sem ákall þess. Henni fannst sem allar
manneskjur ættu að njóta sömu réttinda, óháð öllu öðru, því öll erum við fyrst og fremst
mennsk. Hins vegar var hún sjálf afar kunnug því að vera kúguð, því hún bjó við
tvöfalda undirskipun þess að vera kona og að vera þýðandi.
Það sem einkennir helst texta Konunnar á nítjándu öldinni er ofgnótt tilvísana
og vitnana í ljóð, leikrit, bækur, samtíðarfólk og dagblaðagreina. Verkið er greinilega
skrifað af sprenglærðri manneskju sem nýtir sér allar sínar gáfur til þess að koma
skoðunum sínum á framfæri. Því getur textinn virkað óaðgengilegur. Textinn er að vissu
leyti gamaldags en reynt var í greinargerðinni að sýna fram á að hann eigi erindi við
femínista nútímans. Þar sem textinn er í eðli sínu frumfemínískur, þá var reynt að þýða
eftir formerkjum femínískrar þýðingastefnu og með það fyrir augum að verkið gagnist
konum við að öðlast betri skilning á því hverjir börðust fyrir réttindunum sem við
njótum
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MA - Sólrún Harpa Sveinbjörnsdóttir V6.0.pdf | 947,82 kB | Lokaður til...01.09.2028 | Heildartexti | ||
Sólrún yfirlýsing.pdf | 296,79 kB | Lokaður | Yfirlýsing |