Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/31751
Þessi ritgerð er 10 eininga lokaverkefni í ítölsku og gildir til BA prófs. Í henni mun ég fjalla um þau áhrif sem knattspyrnugoðsögnin Diego Armando Maradona hafði á menningu Napólí, bæði á fótboltalið borgarinnar og stuðningsmenn. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að komast að því hvers vegna hann hafði svona mikil áhrif á íbúa borgarinnar í gegnum knattspyrnu. Til þess að komast að því byrja ég á að kafa aftur í sögu Napólíborgar og skoða tímabilin fyrir og eftir sameiningu Ítalíu. Einnig skoða ég sögu mafíunnar Camorra sem hefur lengi haft mikil völd í borginni og hafði mikil áhrif á tíma og komu Maradona til Napólí. Saga knattspyrnufélagsins S.S.C Napoli verður rakin ásamt æsku Maradona og tíma hans í þessari söguríku borg sem knattspyrnumaður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Freyr Luca Carrella loka.pdf | 1,15 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing.pdf | 1,04 MB | Lokaður | Yfirlýsing |