is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3187

Titill: 
  • Úttekt á námi í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri og rannsókn á viðhorfi útskrifaðra fjölmiðlafræðinga til námsins
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessarar rannsóknar er að skilgreina út á hvað fjölmiðlafræðinám gengur og varpa jafnframt ljósi á hvernig þess konar námi hefur verið háttað á Íslandi hingað til, þá sér í lagi í Háskólanum á Akureyri. Einnig er markmiðið að bera það saman við sambærilegt nám í erlendum skólum og koma með tillögur að úrbótum. Enn fremur eru námi og störfum fjölmiðlafræðinga frá Háskólanum á Akureyri gerð skil sem og viðhorfi þeirra til námsins og gagnrýni þar á.
    Gagnasöfnun fór annars vegar fram með hefðbundinni heimildaleit, aðallega á veraldarvefnum, og hins vegar með spurningalista sem útskrifaðir fjölmiðlafræðingar, sem og lokaársnemar í faginu, svöruðu. Meðal helstu niðurstaðna má nefna að þörf er á að skilgreina betur hvað fjölmiðlafræði er og hvar mörkin milli fjölmiðlafræði og blaðamennsku liggja. Fjölmargir möguleikar eru fyrir hendi varðandi framtíðaruppbyggingu fjölmiðlafræðináms við Háskólann á Akureyri en nauðsynlegt er að vera vakandi fyrir nýjungum og breytingum í náminu til að halda því fersku og spennandi. Mikil þörf er á að auka við fjölmiðlarannsóknir hérlendis en til þess þarf aukið frumkvæði og auknar fjárveitingar af hálfu ríkisvaldsins. Þeim peningum væri vel varið að mati höfundar.
    Í svörum við spurningalistanum og viðtölum við nemendur kom fram að yfirgnæfandi meirihluti nemenda sem stundað hafa nám í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri eru ánægðir með námið. Stærð bekkja, nánd við kennara og staðsetning skólans eru meðal ástæðna þess að námið er jafn vel liðið og raun ber vitni. Þótt námið sé ekki starfsmiðað blaðamennskunám hefur talsverður hluti fjölmiðlafræðinga frá skólanum starfað við fjölmiðla. Mikill meirihluti er á því að námið bjóði upp á fjölbreytta náms- og starfsmöguleika en í svörunum komu einnig fram fjölmargar tillögur að úr- og viðbótum við námið.

Samþykkt: 
  • 6.7.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3187


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
uttektogrannsoknafjolmidlafraedi_thorgeirrunarfinnsson_pdf_heild.pdf284.92 kBOpinnÚttekt á námi í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri og rannsókn á viðhorfi útskrifaðra fjölmiðlafræðinga til námsins - heildarutgafaPDFSkoða/Opna