Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/3190
Tilgangur þessa verkefnis var að kanna hvernig Rás 2 rækir hlutverk sitt um flutning á
íslenskri dægurtónlist. Hversu hátt hlutfall innlendrar tónlistar sé í dagskránni, hvort það sé
fullnægjandi og uppfylli þau lagalegu ákvæði sem stofnunin starfar eftir. Í lögum um
Ríkisútvarpið, segir meðal annars að RÚV skuli varðveita íslenska tungu, sögu þjóðarinnar og
menningararfleifð hennar. Í rannsókninni er ágrip af sögu RÚV og Rásar 2 rakið. Tölur sem
fram koma styðja mikilvægi þess að Rás 2 var sett á laggirnar. Þá var gerð tilraun þar sem
kannað var hvort nánast óþekkt íslensk hljómsveit fengi spilað lag sem sent var til rásarinnar.
Það gekk eftir. Athugað var hvort ástæða eða áhugi væri fyrir því að taka upp svipaða reglu á
Íslandi og í Frakklandi, þar sem útvarpsstöðvum er skylt að spila að minnsta kosti 40%
innlenda tónlist. Svo reyndist ekki vera. Þó reyndist vera áhugi á að opna útvarpsstöð sem
spilar eingöngu íslenska tónlist af öllu tagi. Spilun á íslenskri tónlist á Rás 2 hefur aukist frá
stofnun hennar. Undanfarin fimm ár hefur hún verið um 40%. Almenn ánægja er með hvernig
Rás 2 sinnir íslenskri tónlist. Samhliða rannsókninni var gerð heimildarmynd um sama efni,
32. mínútur að lengd sem nálgast má á bókasafni Háskólans á Akureyri.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| BA_HJALTI_REYNIR_LOKAUTGAFA_fixed.pdf | 497,77 kB | Opinn | Lokaverkefni um íslenska tónlist á Rás 2 | Skoða/Opna |