en English is Íslenska

Thesis (Master's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/32049

Title: 
  • Title is in Icelandic Orðum fylgir ábyrgð. Um ábyrgð netmiðla og annarra vefsíðna á ærumeiðandi ummælum í athugasemdakerfum.
Degree: 
  • Master's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Óhætt er að segja að landslagið í fjölmiðlaheiminum hafi tekið miklum stakkaskiptum á síðustu áratugum, ekki síst sökum gríðarlegra tæknibreytinga og aukins aðgengis að upplýsingum. Þar hefur tilkoma Internetsins haft hvað mest áhrif enda hefur það gjörbylt nútímasamfélagi manna og fjölmiðlun á Netinu er nú samofin daglegu lífi einstaklinga. Fjölmiðlar færa starfsemi sína í auknum mæli yfir á Netið, nýir miðlar skjóta sífellt upp kollinum og auðvelda fólki að koma skoðunum sínum á framfæri. Hafa menn þannig áður óþekkta möguleika til tjáningar, meðal annars á samfélagsmiðlum og spjallsíðum eða í athugasemdakerfum. Slík athugasemdakerfi, þar sem menn geta sett inn ummæli, t.d. undir fréttum sem þeir lesa á netmiðlum, geta vissulega verið vettvangur innihaldsríkra umræðna en umbreytast hins vegar iðulega í gróðrarstíu fyrir ærumeiðingar, hótanir og grófan munnsöfnuð, oft undir dulnefni. Hefur þetta reynst mörgum áhyggjuefni, meðal annars með tilliti til hugsanlegrar ábyrgðar netmiðla, sem halda úti slíkri þjónustu, á ærumeiðandi ummælum þriðja manns í athugasemdakerfi þeirra. Umrætt álitaefni hefur komið til kasta mannréttindadómstóls Evrópu á síðustu árum og hafa dómar hans valdið nokkurri ólgu og skapað umræður víða um heim um stöðu tjáningarfrelsis á Internetinu. Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er að kanna hvaða ábyrgðarreglur gilda að íslenskum rétti um birt efni á Internetinu og hvort ábyrgð netmiðla og annarra vefsíðna á ærumeiðandi ummælum þriðja manns í athugasemdakerfi sé tæk, en enn hefur ekki reynt á þetta tiltekna álitaefni fyrir íslenskum dómstólum. Þá verður höfð hliðsjón af dómaframkvæmd mannréttindadómstólsins og skoðað hvaða sjónarmið koma fram í þeim dómum sem fallið hafa um efnið, hvernig þau horfa við gildandi reglum íslensks réttar og hvers íslenskir dómstólar þurfa að líta til í úrlausnum sínum við mat á hugsanlegri ábyrgð framangreindra aðila svo niðurstaðan feli ekki í sér brot gegn ákvæði 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Accepted: 
  • Jan 7, 2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/32049


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Meistararitgerð - Skemman.pdf1.22 MBLocked Until...2030/01/01Complete TextPDF
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefna.pdf318.1 kBLockedYfirlýsingPDF