en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/3204

Title: 
  • Title is in Icelandic Áhrif svæðisbundinnar auðkenningar á matvælaframleiðslu Eyjafjarðar
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Matvælaframleiðsla á Eyjafjarðarsvæðinu hefur um árabil verið ein af stærstu atvinnugreinum svæðisins. Með skýrslu þessari er skoðað hvernig sterkt svæðisbundið auðkenni getur haft jákvæð áhrif á matvælaframleiðslu svæðisins. Félagið Matur úr héraði var stofnað í samvinnu við matvælaklasa Vaxtarsamnings Eyjafjarðar. Það byggir á menningu og sögulegri ímynd svæðisins og er félaginu ætlað að standa fyrir og kynna svæðisbundna matvælaframleiðslu svæðisins undir auðkenninu Matur úr héraði.
    Svæðisbundin auðkenning er misjöfn eftir landfræðilegri staðsetningu hvers svæðis fyrir sig. Í Evrópu er notuð svæðisbundin skráning (e: Geographical index) sem er ætlað að verja svæðisbundin matvæli hvers staðar fyrir sig, uppruna þess og nafn. Í Ameríku er notast við skrásett vörumerki (e: registered trademark) og upprunamerkingar. Að auki er sérstök leið, AVA, sem notuð er við að tengja og merkja vín framleiðslusvæði sínu. Klasastarf svæða einkennist af því að einstök svæði þurfa að skilja og skilgreina sérstöðu sína. Þar taka aðilar innan sömu atvinnugreinar sig saman og skapa tengslanet og byggja upp samstarf fyrirtækja þrátt fyrir að það séu samkeppnisaðilar. Með því að taka upp samstarf og vinna í klösum skapast fleiri tækifæri og hagkvæmni stæðar getur þannig skapað samkeppnisforskot.
    Félagið Matur úr héraði hefur ekki náð takmarki sínu á þeim þremur árum sem það hefur verið starfrækt. Það er ekki nægilega sýnilegt í umhverfi sínu og fyrirtæki innan klasans hafa ekki öll starfað saman sem skyldi. Það þarf að vera fastráðinn starfsmaður hjá félaginu í hálfu eða heilu starfi sem vinnur að því að markaðssetja félagið og sjá um mál félagsmanna þess. Í vettvangskönnun sem skýrsluhöfundur framkvæmdi kom fram að þekkjanleiki merkis þeirra er ótrúlega lítill og ljóst að varla er hægt að segja að þeir nái því að verða auðkenni. Gerð hafa verið mikil mistök í klasasamstarfinu og auðkenningarferlinu og hefur félagið þar af leiðandi ekki gengið nægilega vel. Í dag er Matur úr héraði ekki sterkt jákvætt svæðisbundið auðkenni en miklir möguleikar eru til staðar og ef félaginu er stjórnað vel getur þetta orðið sterkt svæðisbundið auðkenni.

Description: 
  • Description is in Icelandic Unnið fyrir Matvælasetur Háskólans á Akureyri
Accepted: 
  • Jul 13, 2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3204


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
heild audkenning.pdf5,68 MBOpenÁhrif svæðisbundinnar auðkenningar á matvælaframleiðslu Eyjafjarðar - heildPDFView/Open
Utdrattur audkenning.pdf9,28 kBOpenÁhrif svæðisbundinnar auðkenningar á matvælaframleiðslu Eyjafjarðar - útdrátturPDFView/Open
efnisyfirlit audkenning.pdf10,75 kBOpenÁhrif svæðisbundinnar auðkenningar á matvælaframleiðslu Eyjafjarðar - efnisyfirlitPDFView/Open
heimildaskrá audkenning.pdf72,57 kBOpenÁhrif svæðisbundinnar auðkenningar á matvælaframleiðslu Eyjafjarðar - heimildaskráPDFView/Open