Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/32091
Ritgerð þessi er lokaritgerð til BA-gráðu við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Þetta er heimildaritgerð og markmið hennar er að svara spurningunni um hvernig gildistaka Lissabon-sáttmálans hafði áhrif á utanríkis- og varnarmálastefnu Evrópusambandsins og hvort ESB sé virkari gerandi í alþjóðasamfélaginu í kjölfar sáttmálans. Fyrsti kafli ritgerðarinnar fjallar um kenningaramma ritgerðarinnar, frjálslyndisstefnuna og frjálslyndu milliríkjastefnuna. Annar kafli fjallar um aðdraganda Lissabon-sáttmálans. Þriðji kafli greinir frá þeim breytingum sem urðu á utanríkis- og varnarmálastefnu ESB. Fjórði kafli mun fjalla um nokkur dæmi um aðgerðir ESB í utanríkis- og varnarmálum eftir Lissabonsáttmálann. Að lokum verður greint frá þeim niðurstöðum sem höfundur komst að og þær settar í samhengi við fræðilega umfjöllun í upphafi ritgerðarinnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Evrópusambandið sem áhrifavaldur í alþjóðasamfélaginu BA-ritgerð.pdf | 482.93 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemma Yfirlýsing..pdf | 217.63 kB | Lokaður | Yfirlýsing |