en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/3209

Title: 
  • Title is in Icelandic Stjórnun og skipulag skíðasvæða
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Stjórnun er fræðigrein sem ætlað er að greina og bæta fyrirtækjarekstur. Megináherslan er lögð á að skilja hlutverk stjórnandans og samband hans við undirmenn sína. Okkur er öllum mikilvægt að skilja og spá í hlutina og flest okkar viljum við hafa áhrif á það umhverfi sem við erum í. Sama hver skilgreiningin á stjórnun er þá gera þær allar ráð fyrir ákveðnu skipulagi daglegrar vinnu og aðfanga sem þarf til framleiðslu eða til að ná árangri af einhverju tagi. Helsta hlutverk stjórnunar er að fá fólk til að vinna saman, ýta veikleikum til hliðar og nýta styrk hvers og eins.
    Rekstrarform skíðasvæða á Íslandi er mismunandi og fer það mikið eftir stærð og eignarhaldi. Eignarhald virðist síðan hafa áhrif á hvað stjórnunaraðferðum er beitt. Rekstrarform stærri skíðasvæðanna er undir opinberri stjórnsýslu en á minni skíðasvæðunum eru skíðadeildirnar sjálfar að reka svæðin með aðstoð frá sveitarfélögunum. Þar sem skíðadeildirnar reka skíðasvæðin er meiri sátt um rekstrarformið, skíðadeildin er hjarta rekstrarins.
    Niðurstaða rannsóknarinnar á rekstrarformi skíðasvæðanna leiddi í ljós að breytinga er þörf. Í þeim tilfellum þar sem skíðasvæðin eru rekin undir hatti sveitarfélaganna, þurfa sveitarfélögin að veita rekstraraðilanum meira svigrúm og sveigjanleika svo hægt sé að nýta alla möguleika sem skapast í rekstrarumhverfinu.

Description: 
  • Description is in Icelandic Verkefnið er lokað
Accepted: 
  • Jul 13, 2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3209


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Lokaverkefni_fixed.pdf685,47 kBLockedStjórnun og skipulag skíðasvæða - heildPDF
Efnisyfirlit_fixed.pdf17,21 kBOpenStjórnun og skipulag skíðasvæða - efnisyfirlitPDFView/Open
Heimildarskra_fixed.pdf60,36 kBOpenStjórnun og skipulag skíðasvæða - heimildaskráPDFView/Open
Utdrattur_fixed.pdf9,77 kBOpenStjórnun og skipulag skíðasvæða - útdrátturPDFView/Open