en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/32146

Title: 
  • Title is in Icelandic Áhrif skilnaðar á börn: Hvaða áhrif geta deilur foreldra haft á aðlögun og líðan barna eftir skilnað?
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Þrátt fyrir að skilnaðir séu í nútímasamfélagi taldir eðlilegt fyrirbæri geta þeir samt sem áður reynst börnum erfiðir. Í ljósi þess er mikilvægt að huga vel að börnum þegar slíkar breytingar eiga sér stað. Skilnaður sem slíkur veldur ekki óhjákvæmilega skaða heldur skiptir miklu máli hvernig staðið er að honum og einkum og sér í lagi þegar um ágreining og deilur milli foreldra er að ræða. Markmið þessarar ritgerðar var því að skoða áhrif deilna foreldra á aðlögun og líðan barna eftir skilnað. Niðurstöður leiddu í ljós að ágreiningur foreldra hefur slæm áhrif á líðan barna. Hins vegar kom fram að þeir þættir sem höfðu áhrif á aðlögunarferli barna eftir skilnað voru seigla og gott sjálfstraust. Þessir tveir þættir hafa jákvæð áhrif á andlega og félagslega líðan og auðveldar börnum að takast á við mótlæti síðar á lífsleiðinni. Foreldrasamvinna er lykilatriði þegar kemur að aðlögun og lífsgæðum barna í því breytingaferli sem skilnaður er. Má því álykta að góð samvinna milli foreldra dragi úr ágreiningi og auki tengsl barna við báða foreldra sína. Jafnframt hefur hún jákvæð áhrif á tengslamyndun barna síðar á lífsleiðinni.

Accepted: 
  • Jan 10, 2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/32146


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
EKH11_Áhrif skilnaðar á börn.pdf463.53 kBOpenComplete TextPDFView/Open
49253503_2228942553993508_2069736489310224384_n.jpg674.45 kBLockedYfirlýsingJPG