is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/32165

Titill: 
  • „Það er bara eitthvað svo stimplað í samfélagið að maður verði að vera á bókina“: Námsval nemenda í MA og VMA
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að fá innsýn í náms- og skólaval viðmælenda sem völdu sér Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri sem framhaldsskóla eftir 10. bekk. Áhersla var lögð á að skoða ástæður þess að þau völdu tiltekna námsbraut og samkvæmt þeirra upplifun hvaða þættir það voru sem höfðu áhrif á það val. Einnig var reynt að greina viðhorf viðmælenda til framhaldskólanna á Akureyri og nemenda þeirra skóla. Rannsóknin er eigindleg og byggir á viðtölum við átta nemendur sem stunda nám við Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri. Helstu niðurstöður sýndu fram á ýmsa þætti sem höfðu áhrifa á námsval viðmælanda. Skýrt munstur var á því hvort námsvalið væri út frá skóla eða námsbraut. Nemendurnir úr MA virtust frekar hafa valið sér nám út frá skóla en nemendurnir úr VMA virtust hafa valið nám út frá námsbraut. Þeir þættir sem virtust hafa áhrif á náms- og skólaval viðmælenda voru áhugi á því námi sem valið var, systkini, foreldrar, væntingar um félagslíf í framhaldsskóla, áhugi á verklegu- eða bóklegu námi í grunnskóla og vitneskja í grunnskóla um framhaldsnám og störf. Einnig sýndu niðurstöður fram á sterk viðhorf viðmælenda til framhaldskólanna á Akureyri sem einnig höfðu mikil áhrif á val þeirra. Vonast er til að niðurstöðurnar nýtist til að finna leiðir sem auka skilning á hvernig nemendur velja skóla eða nám út frá viðhorfum frekar en til dæmis áhuga. Með þann skilning í farteskinu væri hugsanlega hægt að útbúa aðgerðaráætlun sem gæti nýst til að draga úr brottfalli úr námi og jafnvel auka hlutfall nemenda sem sækja um á starfsnámsbrautum.

  • Útdráttur er á ensku

    The aim of this research was to study the motivations behind the school and course of study choices of students after finishing elementary schools and now studying in Akureyri Junior College (í. Menntaskólinn á Akureyrir) or Akureyri Comprehensive College (í. Verkmenntaskólinn á Akureyri). The focus of the study is on the students reasoning why and how they decided about their upper level studies and what influenced their decision-making process. The aim of the study was also to analyze the interviewees ideas about these two upper level schools in Akureyri and their ideas about the school’s students. The study is based on a qualitative research method, interviews were conducted among eight students currently studying at The Akureyri Junior College and The Akureyri Comprehensive College. The main findings reveal that various factors motive the decisions when it comes to school and course of study choices among the students. The interviewees studying at the Akureyri Junior College were more likely to select the school first and afterwards the course of study but the interviewees studying at the Akureyri Comprehensive College choose first their course of study and then selected the school that offered the studies. The main influences the interviewees described impacting their decisions making were interest, siblings, parents, expectations about the school social life, interest in vocational or academic training in elementary school and knowledge about next level education. The findings also revealed that the interviewees had strong opinions about the two schools in Akureyri and that the preconceptions influenced their selection of school. Hopefully these findings will contribute to deepen the understanding about how students make decisions about upper level education, e.g. in regards with preconceptions about schools rather than in interest of study. Based on such knowledge students can be guided while making decisions about their future studies in way that might reduce school dropout and even increase the number of students applying for vocational course of studies.

Samþykkt: 
  • 15.1.2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/32165


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni Yfirlýsing.pdf56.74 kBLokaðurYfirlýsingPDF
MA-ritgerð-Loka1.pdf606.57 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna