Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/32255
Hönnun og útboð á forhannaðri samkeppnistillögu af þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Um er að ræða nýbyggingu sem kemur til með að þjónusta gesti þjóðgarðsins Snæfellsjökul.
Burðarvirki byggingar er staðsteypt og járnbent. Byggingin er einangruð og klædd að utanverðu. Gluggar byggingar eru álgluggakerfi. Áferð á steyptum byggingarhlutum að innanverðu eru að stórum hluta með sjónsteypuáferð. Þök byggingar eru annars vegar viðsnúin torfþök og hins vegar glerþök.
Verkefnið inniheldur þá fasa sem kenndir eru í byggingafræðináminu, má þá nefna: frumhönnun, forhönnun, aðaluppdrættir, verkteikningar, útboðs- og verkskilmálar ásamt verklýsingum. Einnig fylgja þessu verkefni öll hönnunargögn sem viðkoma verkefninu frá byrjun til enda.
Upprunalegur arkitektúr er eftir Einar Ólafsson og er meginhugmynd hans að hönnun byggingarinnar sé eins og hér segir: „Lögð var áhersla á að hanna þjóðgarðsmiðstöð sem keppti ekki um athygli gesta heldur myndi byggingin sem slík leiða athygli fólks að sérkennum þjóðgarðsins og umhverfi hans þ.e. jökulsins og sjónum“.