Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/32283
Auknar vinsældir náttúrutengdrar ferðamennsku og ævintýraferðamennsku hafa kallað eftir rannsóknum á viðfangsefninu. Samfélag manna hefur með iðnbyltingu, tækniframförum og borgvæðingu, fjarlægst náttúruna sem skapað hefur aukna þörf mannsins til að tengjast náttúrunni. Ein leið til þess að skoða þetta flókna samband manns og náttúru er að rýna í mismunandi þætti sem móta upplifun ferðamanna í náttúrutengdri ferðamennsku. Í þessu verkefni var fyrirbærafræðilegri nálgun beitt til að varpa ljósi á upplifun þátttakenda í jöklagöngu á Íslandi. Niðurstöðurnar byggja á 4 viðtölum við samtals 6 Bandaríkjamenn sem fóru í skipulagða gönguferð á Falljökul. Þær sýna fram á mismunandi þætti sem koma að skýringu upplifunarinnar. Í upphafi er áhersla á djúpstæð tengsl manns við umhverfið sem á uppruna sinn í líkamlegri skynjun. Síðar er skýrt frá því hvernig ímyndunaraflið vinnur úr stærð og kraft náttúrunnar, sem skynjunin gat ekki unnið úr. Að lokum er hlutverk ímyndar íslenskrar náttúru, sjálfsmyndar og annarra utanaðkomandi áhrifavalda á upplifunina, rætt. Rannsóknin byggir á tveimur mismunandi áherslum úr ranni fyrirbærafræðilegrar nálgunar, þeirra Edmund Husserl og Martin Heidegger. Eru áherslur þeirra beggja notaðar og ræddar. Í verkefninu er einnig að finna gott dæmi um mikilvægi hlutleysis og sjálfrýnis rannsakenda þegar gagnaöflun er framkvæmd.
Increasing popularity in nature-based tourism and adventure-tourism has created a demand for research on the subject. Society has drifted away from nature with industrialisation, technological progress and urbanisation wich has led to an increasing human-need to connect with nature. One way to examine the complex relation between man and nature is by pointing out different actors that shape the experience in nature-based tourism. In this thesis, a phenomenological approach was used to elucidate the experience that participants in a glacier hike in Iceland, receive. The conclusions are based on 4 different interviews with a total of 6 people, all from the United States and took part in an organized glacier hike on Falljökull glacier. They demonstrate different factors that shape the experience. Fyrstly the aim is on the complex relationship that is found between human actors and the surrounding and is absorbed through bodily sensation. Secondly the focus is on moments when the senses could not perceive the entire size or power of nature, and the imagination took over. Lastly the discussion is about the role of representations of icelandic nature, identities and other external factors that shape the experience. The research is based on two different perspectives in phenomenological methodology, firstly Edmund Husserls emphasis and secondly the one presented by Martin Heidegger. Both perspectives are used and discussed. From a researchers point of view, this thesis also includes a good example on the importance of neutrality and self-reflexivity when it comes to performing the research.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Yfirlýsing fyrir Skemmuna.pdf | 439,55 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
Líkaminn, hugurinn og allt hitt.pdf | 27,72 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |