is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/32298

Titill: 
  • Hagkvæmni, umhverfisáhrif og fjármögnun smárra vatnsaflsvirkjana á Íslandi: Athugun á kröfum vegna umhverfismála og leyfisveitingaferla smávirkjana og tengsl við hagkvæmni og fjármögnun
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Talið er að framtíðarorkueftirspurn þjóðarinnar verði svarað með endurnýjanlegum orkugjöfum. Búið er að virkja nærri alla stóra hagkvæma virkjunarkosti á Íslandi og eykst þar með mikilvægi smávirkjana. Athugun þessi beinist að smávirkjunum sem voru tilkynntar til Skipulagsstofnunar eftir aldamót. Virkjunarkostur þarf að standast kröfur um hagkvæmni og lágmörkun umhverfisrasks. Einnig þarf fjármögnun til að standa straum af þeim kostnaði sem fellur til. Greint verður hvernig lagaleg ákvæði um mat á umhverfisáhrifum og leyfisveitingar hafa áhrif á hagkvæmni og fjáröflun smárra vatnsaflsvirkjana á Íslandi. Aðferðafræði rannsóknarinnar var tvíþætt, annars vegar voru einkennandi þættir smávirkjanaframkvæmda greindir út frá greinargerðum og öðrum opinberum gögnum tengdum 18 smávirkjunum. Hins vegar voru tekin viðtöl við fimm framkvæmdaraðila smávirkjana þar sem rætt var um undirbúningsferlið, hagkvæmni og samskipti þeirra við opinberar stofnanir. Helstu niðurstöður sýndu bein tengsl á milli umfangs framkvæmdar og matsskyldu. Hagkvæmnismat virkjana innifól almennt ekki umhverfisáhrif, þrátt fyrir að framkvæmdaraðilar teldu að umhverfiskröfur hefðu mikil áhrif á arðbærni smávirkjana, sérstaklega þeirra minnstu undir 3MW. Framkvæmdaraðilar upplifðu að kröfur til umhverfisrannsókna hefðu aukist frá aldamótum, þó svo að lagaramminn hefði haldist óbreyttur síðan árið 2000. Niðurstöður gefa til kynna samtengingu milli umhverfisáhrifa, hagkvæmni og fjármögnunar. Umhverfisáhrif framkvæmdar hafa áhrif á hagkvæmni hennar. Áhrifin birtast frekar óbein í formi tafa heldur en bein í form aukins kostnaðar. Fjármögnun virkjanaframkvæmda var almennt ekki veitt fyrr en framtíð virkjunarinnar var orðin örugg og öll leyfi tryggð, þar með ollu tafir og óvissa í undirbúningsferlinu töfum í fjármögnun. Ekkert benti til þess að umhverfisáhrif kæmu í veg fyrir fjámögnun framkvæmdar.

Samþykkt: 
  • 30.1.2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/32298


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS_loka_HrafnhildurJ2019.pdf2.45 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
lokaverkefni_eyðublað.jpg567.17 kBLokaðurYfirlýsingJPG