Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/32317
Tilgangur þessarar rannsóknar er þríþættur. Það er að rannsaka hve mikil áhersla er lögð á hugbúnaðarprófanir á meðal hugbúnaðarfyrirtækja á Íslandi. Að rannsaka ánægju viðtakenda hugbúnaðar og síðan að kanna hvort að tengsl séu á milli áherslu á prófanir og ánægju viðtakenda hugbúnaðar.
Skipulögð viðtöl voru tekin við viðtakendur hugbúnaðar hjá ferðaþjónustufyrirtækjum sem selja ýmis konar ferðir á Íslandi og ánægja þeirra könnuð með eftirfarandi atriði: „Viðtökur nýrra eininga og aðgerða í hugbúnaði”, „Samhæfingu aðgerða í hugbúnaði”, „Kerfi í heild sinni”, „Notendaupplifun”, „Hraða hugbúnaðar” og „Öryggi hugbúnaðar”. Einnig var spurningalisti lagður fyrir viðkomandi starfsmenn hugbúnaðarfyrirtækjanna sem smíðuðu hugbúnaðarlausnirnar fyrir ferðaþjónustufyrirtækin þar sem mæld var áhersla á einingaprófanir, samhæfingaprófanir, kerfisprófanir, viðtökuprófanir, notendaprófanir, hraðaprófanir og öryggisprófanir.
Mesti munurinn á áherslu í prófunum frá rannsókn sem gerð var 2009 er í öryggisprófunum
þar sem meiri áhersla er gerð á slíkar prófanir í dag samkvæmt þessari rannsókn.
Mesta ánægjan var með gæðaþáttinn „Öryggi hugbúnaðar” en minnst var ánægja hjá viðtakendum með virkniþættina „Samhæfing aðgerða í hugbúnaði„, „Kerfi í heild sinni” og „Viðtökur nýrra aðgerða í hugbúnaði”.
Jákvæð fylgni fannst á milli áherslu á samhæfingaprófanir, kerfisprófanir og viðtökuprófana og atriðin „Samhæfing aðgerða í hugbúnaði„, „Kerfi í heild sinni” og „Viðtökur nýrra aðgerða í hugbúnaði” í sömu röð.
The purpose of this study was threefold, to study the emphasis on software testing among software companies in Iceland, study the satisfaction of recipients of software and then check if there is a correlation between emphasis on testing and satisfaction of recipients of software.
Organized interviews were taken with software recipients of companies in the travel industry selling various types of travel related products in Iceland, and their satisfaction measured by the following: "Receiving new software units and software operations", "Integration of software operations", "System as a whole", "User experience", “Speed of the software" and "Software security". A questionnaire was also submitted to the relevant employee of the software company who built the software solution, where focus on unit tests, integration tests, system tests, acceptance tests, user tests, speed tests and security tests were measured.
In this study we found out that more focus is set on security test in this study compared to a similar study in 2009.
Recipients were most satisfied with the software components "Software security", but least satisfied with the components "Receiving new software units and software operations" and "System as a whole".
A positive correlation was found between the emphasis on integration tests, system tests and acceptance tests, and "Integration of software operations", "System as a whole" and "Receipt of new software operations" respectively.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Aherslaahugbundadarprofaniroganaegja.pdf | 1.79 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |