Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/32361
Markmið þessarar rannsóknar var að leggja fram tillögur að uppfærslu og betrumbætingu á líkamlegu stöðuprófi starfsmanna Slökkviliðs höfuðborgasvæðisins (SHS), sem allir starfsmenn sem fara í útköll þurfa að taka árlega. Alls tóku 23 starfsmenn SHS þátt í rannsókninni og ný próf voru keyrð og borin saman við þau sem nú eru í notkun. Skoðað var hvað slökkvilið annars staðar í heiminum kanna í slíkum prófum og notaðar erlendar rannsóknir til að ákvarða hvaða próf líkjast best þeim aðstæðum sem verða á vettvangi slökkvistarfs. Að auki var skoðað hvort að sömu kröfur ættu að vera gerðar til allra aldurshópa og beggja kynja þar sem erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að það hallar á konur þegar það kemur að líkamlegum þáttum eins og styrk og loftháðu þoli. Niðurstöður leiddu í ljós að elsti hópurinn, sem starfsmenn á aldursbilinu 44-59 ára tilheyrðu, skoruðu lægst á öllum prófum fyrir utan gripprófið og er það í samræmi við aðrar rannsóknir. Konurnar voru með töluvert lakari gripstyrk, og tveir einstaklingar hefðu fallið á nýju prófunum ef þau væru tekin í dag og einn hefði fallið á prófunum sem eru nú í notkun. Fylgnin var sterkust með æfingum sem tóku á efri hluta líkamans. Miðað við niðurstöður erlendra rannsókna líkist nýja þol og þrekprófið mikið meira þeim aðstæðum sem starfsmenn verða fyrir á vettvangi heldur en þau próf sem notuð eru nú.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS verkefni lokaskil.pdf | 295,97 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |