Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/32482
Fjölmiðlar spila stórt hlutverk í lífi okkar, hlutverk þeirra er að halda okkur upplýstum og sýna okkur málefni frá mismunandi sjónarhornum. Notkun almennings á samfélagsmiðlum hefur aukist og hafa fjölmiðlar þurft að taka tillit til þessarar notkunar meðal annars til þess að ná til fjöldans. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna með eigindlegri rannsóknaraðferð hvort hlutverk eða verklag fjölmiðla sem halda úti vefmiðlum hafi breyst með þessari auknu notkun á samfélagsmiðlum, hvernig fjölmiðlar nýta samfélagsmiðla og hvað hefur áhrif á hinar ýmsu ákvarðanir sem þarf að taka í kringum þá notkun.
Rannsóknin var framkvæmd með því að fá fréttastjóra og fréttamenn sem starfa hjá fjölmiðlum sem halda úti vinsælustu vefmiðlum landsins til að svara spurningalista um rannsóknarefnið ásamt því að nýta heimildir úr bókum, greinum og af vefsíðum sem styðja við rannsóknarefnið og skýra það frekar.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að hlutverk fjölmiðla hefur ekki tekið breytingum á meðan verklag hefur aðlagað sig notkun samfélagsmiðla og veru almennings þar.
The media play a major role in our lives, their role is to keep us informed and show us different angles of issues. The public use of social media has increased and the media have had to take this use into account, among other things, to reach the masses. The aim of this study is to investigate by qualitative research method whether the role or procedures of the media that maintained news webpages have changed with this increased use of social media, how the media use their social media and what affects the various decisions that need to be taken around that use.
The study was conducted by getting news directors and reporters working with media who maintain the country's most popular news webpages to answer a questionnaire on the subject, as well as utilizing sources from books, articles, and web pages that support the research topic and explain it further.
The results of the study show that the role of the media has not changed while the procedures of medias work has adapted to the use of social media and the presence of the public there.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
JohannaSigmunds_BA_Lokaritgerd.pdf | 456,95 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |