Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/32489
Í þessari ritgerð er umfjöllunarefnið sjónvarpsþátturinn Kiljan, á RÚV, sem og stjórnandi hans, Egill Helgason, en þátturinn fjallar um bókmenntir vítt og breitt, íslenskar sem erlendar, þó mun meira um íslenskar. Hér verður rakin saga þáttarins frá upphafi, en tæp tólf ár eru liðin síðan fyrsti þátturinn fór í loftið, og Egill Helgason hefur haldið um stjórnartaumana frá upphafi.
Þátturinn er sá menningarþáttur sem lengst hefur verið samfellt á dagskrá hjá RÚV og er það eitt og sér næg ástæða til að gera honum skil í ritgerð sem þessari.
Aðalmarkmið ritgerðarinnar er að draga fram heildarmynd af sjónvarpsþætti um bókmenntir á Íslandi sem sló í gegn undir stjórn manns sem lauk ekki stúdentsprófi og gnæfir yfir allri bókmenntaumfjöllun á Íslandi. Kiljan er langáhrifamesti þáttur um bókmenntir á Íslandi, og líklega hefur enginn menningarþáttur haft eins mikil áhrif og völd í íslensku sjónvarpi frá stofnun þess.
The subject of this essay is Kiljan, a television programme on The Icelandic National Broadcasting Service, Ríkisútvarpið (RÚV for short), and its host, Egill Helgason. Kiljan looks at literature on a wide spectrum, Icelandic and foreign, whilst focusing on Icelandic literature.
The show‘s nearly 12 year history, all featuring Egill Helgason as its host, will be traced from its beginnings.
Kiljan is the longest running continuous culture television programme on RÚV and that alone is reason enough to make it the focus of this essay.
The primary objective is to put the focal point on a popular television show about literature in Iceland, whose host did not finish high school. Yet Kiljan towers over all literary criticism in Iceland. Kiljan is, by far, the most influential television programme about literature in Iceland. It is unlikely that any show about culture has had as much power and influence in Icelandic television since its beginning in 1966.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Egils saga og Kiljunnar.pdf | 508,21 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing um meðferð verkefnis SMS.pdf | 49,87 kB | Lokaður | Yfirlýsing |