Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/3256
Útdráttur
Í Evrópu hefur nokkur ólga verið uppi um rétt útsendra starfsmanna gagnvart þjónusturétti
fyrirtækja. Takast þar á sjónarmið félagslegra réttinda og frelsis til þjónustuveitingar innan
bandalagsins.
Með lögum nr. 45/2007 ,um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn
tímabundið til Íslands, var tilskipun 96/71/EB, um störf útsendra starfsmanna í tengslum við
veitingu þjónustu, innleidd í íslenskan rétt.
Markmið ritgerðarinnar er að fjalla um tilskipunina og kanna hvaða sjónarmið lögð hafa verið
til grundvallar á túlkun ákvæða hennar af Evrópudómstólnum. þeirra og leitast við að komast
að því hvort ákvæði íslensku laganna samrýmist þeirri túlkun sem lögð er til grundvallar á
ákvæðum tilskipunarinnar.
Við rannsóknina var eftirfarandi spurning lögð til grundvallar:
Var tilskipun 96/71/EB, um störf útsendra starfsmanna við veitingu þjónustu, innleidd með
réttum hætti í íslenskan rétt með lögum nr. 45/2007?
Eftir umfjöllun um tilskipunina og túlkun ED á ákvæðum hennar kom fram að til að ákvæði
samræmist löggjöf Bandalagsins þurfi það, skv. ED og Framkvæmdastjórninni, að vera skýrt,
nákvæmt og sett á grundvelli allsherjarreglu og meginreglunnar um jafna meðferð.
Eftir að hafa rannsakað efnið og leitað heimilda var niðurstaða rannsóknarinnar sú að ákvæði
laga nr. 45/2007 eru ekki haldin annmörkum og samrýmast löggjöf Bandalagsins.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
palmi_rognvalds_fixed.pdf | 948.78 kB | Locked | Meginmál |