Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/32612
Dagbókin segir sögu íslenskrar konu búsettrar á Spáni sem ferðast í ónefndan fjörð austur á landi til að fara í jarðarför og ganga frá dánarbúi frænku sinnar. Í húsi frænkunnar finnur hún dagbók frá árinu 1941, þegar frænkan var ung kona. Í dagbókinni uppgötvar hún alveg nýja hlið á frænku sinni og í kjölfarið á sjálfri sér líka.
Í grunninn er frásögnin söguleg nóvella um hinsegin konur. Fyrr á öldum höfðu konur sem elskuðu konur ekki orð yfir langanir sínar og þrár og í mörgum tilfellum var litið niður á þær og val þeirra á lífsförunaut talið ósiðlegt. Heimildir um ástir kvenna á konum fyrir réttindabaráttu samkynhneigðra eru því sárafáar. Það þýðir þó ekki að þær hafi ekki verið til og reynir þessi frásögn að fylla í eyðurnar sem sagan hefur skilið eftir.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Anna_Kristin_Gunnarsdottir-DagbokinMA.pdf | 893.48 kB | Locked Until...2089/05/02 | Complete Text | ||
Skemman_yfirlysing_Anna_Kristin_Gunnarsdottir.pdf | 218.11 kB | Locked | Yfirlýsing |