Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/32638
Starf skiptastjóra við gjaldþrotaskipti er mikið ábyrgðarhlutverk enda sér hann um framkvæmd skiptanna, þó með afskiptum kröfuhafa. Hlutverk skiptastjóra í grófum dráttum er að koma eignum þrotabús í verð og ráðstafa andvirðinu upp í skuldir búsins. Til að kröfuhafar þrotabús fái ráðstafað sem mestu upp í skuldir sínar eru skiptastjóra veittar rúmar heimildir til að sinna hlutverki sínu samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991. Lítið hefur verið fjallað um skaðabótaábyrgð skiptastjóra í íslenskum rétti þrátt fyrir að oft komi upp ágreiningur um störf skiptastjóra við gjaldþrotaskipti. Markmið þessarar ritgerðar er að gera grein fyrir skaðabótaábyrgð skiptastjóra með almennum hætti og jafnframt leita svara við því hvers vegna ekki reynir í meiri mæli á ábyrgð hans. Ritgerðin tekur einkum mið af skaðabótaábyrgð lögmanna í starfi skiptastjóra vegna þess að yfirleitt eru lögmenn skipaðir til starfsins. Umfjöllunin felur ekki í sér tæmandi talningu á starfsskyldum skiptastjóra eða tilvikum þar sem bótaskylda kemur til greina, heldur er henni fremur ætlað að varpa ljósi á hvort og þá að hvaða marki skaðabótaábyrgð skiptastjóra er til staðar. Vegna skorts á fræðilegri umfjöllun um málið eru ýmsar ályktanir dregnar af norrænni umfjöllun og dómaframkvæmd auk þess sem höfð er hliðsjón af innlendum dómum sem fela í sér umfjöllun um háttsemi skiptastjóra, þó málin varði ekki ábyrgð skiptastjóra með beinum hætti. Í upphafi ritgerðarinnar er fjallað stuttlega um gjaldþrotaskipti með almennum hætti. Í kafla 3 er gerð almenn grein fyrir starfi skiptastjóra. Sú umfjöllun byrjar á sögulegu yfirliti um starfið en einnig er fjallað um skipun og hæfi skiptastjóra, réttarstöðu hans, ákvörðunarvald skiptastjóra og undantekningar á því. Í kafla 4 er komið að meginviðfangsefni ritgerðarinnar þar sem fjallað er um bótagrundvöllinn sem gildir um skaðabótaábyrgð skiptastjóra. Vegna skorts á fræðilegri umfjöllun um skaðabótaábyrgð skiptastjóra er grundvelli skaðabótaábyrgðar lýst með ítarlegum hætti og ýmis álitaefni tengd starfi skiptastjóra reifuð til hliðsjónar. Í lok kaflans er fjallað um takmörk á bótaábyrgð skiptastjóra þar sem þeirri spurningu er velt upp hvers vegna það reynir ekki í meiri mæli á skaðabótaábyrgð skiptastjóra hér á landi. Í kafla 5 er gerð grein fyrir helstu starfsskyldum skiptastjóra og ályktanir dregnar um mögulega skaðabótaábyrgð hans á þessum störfum með hliðsjón af fyrri umfjöllun ritgerðarinnar og dómaframkvæmdar. Í kafla 6 er umfjöllunarefni ritgerðarinnar dregið saman og gerð grein fyrir helstu niðurstöðum hennar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskjal_AKV.pdf | 951.04 kB | Lokaður til...01.01.2039 | Heildartexti | ||
Skemman_yfirlysing (2).pdf | 282.1 kB | Lokaður | Yfirlýsing |