en English is Íslenska

Thesis (Master's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/32726

Title: 
  • Title is in Icelandic Ísland í Norðurskautsráðinu. Þar sem stærðin skiptir ekki öllu máli
Degree: 
  • Master's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Ísland er eitt átta aðildarríkja Norðurskautsráðsins sem er helsti samstarfsvettvangurinn um málefni norðurslóða. Verkefni Norðurskautsráðsins hafa orðið umfangsmeiri á undanförnum árum, einkum vegna áhrifa loftslagsbreytinga og alþjóðasamninga norðurskautsríkjanna. Ísland, sem er minnsta ríkið í ráðinu, nýtur góðs af lýðræðislegri uppbyggingu Norðurskautsráðsins og þeirri samvinnumenningu sem þar ríkir. Ísland hefur einnig gert sig gildandi á svæðinu af eigin rammleik með ýmsum hætti til dæmis með því að auka þekkingu innanlands á málefnum svæðisins. Ef marka má svör þeirra alþingismanna sem tóku þátt í rannsókninni er pólitísk staða Íslands á norðurslóðum sterk. Ísland hefur margt fram að færa til samstarfsins og sú lýðræðislega samvinnumenning sem ríkir í Norðurskautsráðinu styrkir stöðu Íslands. Margir þættir gera það að verkum að samstarfið einkennist af trausti og samvinnumenningu. Eitt af því sem skiptir máli í því samhengi er að stærsta verkefnið á norðurslóðum, loftslagsmál, er hnattrænt vandamál og snertir því alla. Verkefnið krefst þess að margir mismunandi aðilar sameini krafta sína, sérfræðiþekkingu og reynslu. Veikleikar Íslands felast einkum í smæð hagkerfisins sem gerir það að verkum að Ísland er að einhverju leyti vanbúið til að sinna sumum af þeim skyldum sem alþjóðasamningar norðurskautsríkjanna leggja Íslandi á herðar. Ísland hefur því lagt áherslu á stóraukna samhæfingu og aukna samvinnu við erlenda aðila um málefni svæðisins. Í maí árið 2019 tók Ísland við formennsku í ráðinu til tveggja ára. Þetta er í annað skiptið sem Ísland sinnir formennskunni. Gera má ráð fyrir að verkefnið reynist umfangsmeira að þessu sinni vegna fleiri og umfangsmeiri verkefna en áður. Vegna loftslagsmála ríkir mikil óvissa á svæðinu. Óvissa er oft undanfari breytinga. Mikilvægt er að stjórnun á norðurslóðum haldi áfram að einkennast af samvinnu og verði lýðræðisleg fremur en að aflsmunir og stærð ríkja fari að ákvarða áhrif þeirra á svæðinu.

  • Iceland is a member state in the Arctic Council, which is the main cooperative forum on Arctic issues. In recent years, interest in the Arctic has become more extensive, mainly due to the impact of climate change and international agreements regarding the Arctic. Iceland benefits from the democratic structure of the Arctic Council and the cooperation therein. Iceland has also created a position for itself as an independent actor, for example, by disseminating knowledge on Arctic issues. According to the parliamentarians who took part in this study, Iceland has a strong political position in the Arctic. Iceland brings much to the table and the inclusive nature of the cooperation strengthens Iceland‘s position in the region. One of the reasons why Arctic cooperation is inclusive is because the biggest challenge, climate change, requires many different parties to unite their strengths, expertise and experience. Iceland’s principal weakness is its small economy, which translates into the fact that Iceland is in some way limited in its ability to fulfill some of the obligations of the international treaties that the Arctic eight states have agreed. Iceland has therefore emphasized increased national and international coordination and extended cooperation with foreign parties. In 2019 Iceland took over the Chairmanship of the Arctic Council for the second time. It is expected that the chairmanship will be harder this time around, principally because of climate change. There remains much uncertainty in the region. Uncertainty is often a precursor of change. It is vital that the management of the Arctic remains cooperative and democratic so that size and hard power will not be determinative of state impact and influence in the region.

Accepted: 
  • May 7, 2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/32726


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefna.pdf76,99 kBLockedYfirlýsingPDF
MA-í Turnitin- PDF.pdf856,81 kBOpenComplete TextPDFView/Open