is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/32746

Titill: 
  • Einkenni lýðhyggju innan stjórnmálaflokka Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
  • Titill er á ensku Populism within the political parties of Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er án efa einn umdeildasti stjórnmálamaðurinn í stjórnmálasögu Íslands. Á innan við áratug fór hann frá því að vera óflokksbundinn, yfir í að vera formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra Íslands og síðar stofnaði hann Miðflokkinn sem náði inn sjö þingmönnum í sínum fyrstu kosningum.
    Í þessari ritgerð er kannað hvort lýðhyggja hafi verið til staðar í Framsóknarflokknum og Miðflokknum undir stjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Því eru helstu einkenni lýðhyggju útskýrð og sett í samhengi við þessa stjórnmálaflokka. Jafnframt er greint frá lýðhyggnum stjórnmálaflokkum á Norðurlöndunum til samanburðar við stjórnmálaflokka Sigmundar Davíðs. Farið er ýtarlega yfir feril Sigmundar Davíðs í stjórnmálum frá árinu 2009 til byrjunar árs 2019 til þess að kanna hvort einkenni lýðhyggju hafi birst í stjórnmálastörfum hans.
    Þrátt fyrir að einhver einkenni lýðhyggju hafi á vissum tímapunkti átt við Framsóknarflokkinn undir stjórn Sigmundar Davíðs telst flokkurinn ekki til lýðhyggjuflokka. Flest einkenni lýðhyggju hafa átt við Miðflokkinn frá því að hann var stofnaður og svipar hann til lýðhyggjuflokka sem má finna á Norðurlöndunum og er því hægt að telja hann lýðhyggjuflokk.

Samþykkt: 
  • 7.5.2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/32746


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA-Ritgerð Elfar Tjörfi Steinason.pdf516.62 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing Elfar Tjörfi Steinason.pdf370.95 kBLokaðurYfirlýsingPDF