is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/3288

Titill: 
  • Innra eftirlit
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Innra eftirlit er ekki einstök aðgerð, starf ákveðins starfsmanns eða einnar deildar heldur ferli sem stjórn fyrirtækis ber ábyrgð á og hefur mótunaráhrif á ásamt stjórnendum fyrirtækisins. Innra eftirlit er ferli þar sem stjórn, stjórnendur og aðrir starfsmenn fyrirtækisins eru allir þátttakendur. Innra eftirliti er ætlað að hjálpa fyrirtækinu að ná helstu markmiðum sínum, þ.e. rekstrarmarkmiðum sínum, markmiðum um áreiðanleika fjárhagsupplýsinga, markmiðum um fylgni við lög og reglur og markmiðum um verndun og meðferð eigna.1 Fleiri en ein samtök hafa fjallað um innra eftirlit í fyrirtækjum, þau þekktustu eru
    COSO nefndin og CICA (CoCo skýrslan), önnur samtök sem mætti nefna eru ITGI sem fjallar meira um innra eftirlit út frá tölvukerfum og svo Ríkisendurskoðun sem fjallar um innra eftirlit að mestu út frá ríkisreknum fyrirtækjum og stofnunum. Alþjóðleg samtök endurskoðenda, IFAC, hafa gefið út Alþjóðlega Endurskoðunarstaðla, ISA, þar sem vísað er til COSO og CoCo við skilgreiningu á innra eftirliti.
    Ný lög um endurskoðendur tóku gildi hér á landi 1.janúar 2009, lög nr. 79/2008 um endurskoðendur. Lög þessi voru sett til þess að taka upp í íslenskt lagaumhverfi ákvæði 8.tilskipunar Evrópusambandsins um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikninga.
    Í tilskipuninni segir enn fremur að öll fyrirtæki í löndum sem eru aðilar að EES þurfa að haga lögboðinni endurskoðun í samræmi við ISA staðlana. Í ljós hefur komið að umfjallanir COSO, CoCo, CobiT og Ríkisendurskoðunar um innra eftirlit eru mjög keimlíkar. Grunnhugmyndir og grunnþættir innra eftirlits virða vera þeir sömu þó viðfangsefnið, innra eftirlit, sé nálgast á mismunandi hátt hjá hverjum einum. Þó ber þess að geta að í CobiT þá er vísað í COSO þegar fjallað er um innra eftirlit.

Samþykkt: 
  • 30.1.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3288


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Jon_Orn_Gunnlaugsson_fixed.pdf268.62 kBLokaðurHeildartextiPDF