is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskipta- og hagfræðideild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business and Economics >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/33072

Titill: 
  • Hver er þátttaka almennings á hlutabréfamarkaði á Íslandi ?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Rannsókn þessi fjallar um hlutabréfamarkaðinn á Íslandi og hver þátttaka almennings sé á honum. Gögnum var safnað frá Kauphöll Íslands og einnig Heimssamtökum Kauphalla eða World Federation of Exhange. Í framhaldi af því voru framkvæmd djúpviðtöl við sérfræðinga á markaðinum og einnig einstaklinga sem haft hafa einhverja reynslu á fjárfestingum. Einnig voru skoðaðar tölur frá öðrum löndum um þátttöku almennings á hlutabréfamarkaði og þær bornar saman við tölur á Íslandi.
    Niðurstöður gáfu til kynna að almenningur á Íslandi tekur lítinn þátt í fjárfestingum hlutabréfa og er eignaraðild almennings eingöngu 4,5% af heildarmarkaðsverðmæti markaðarins. Dregið hefur úr þátttöku almennings á hlutabréfamarkaði í flestum löndum en áberandi mikið á Íslandi. Niðurstöður viðtala gáfu til kynna ástæður fyrir lélegri þátttöku, en traust var þar efst á lista. Almenningur á Íslandi virðist enn ekki hafa náð sér almennilega eftir fjármálahrunið 2008. Viðmælendur nefndu einnig lífeyrissjóðskerfið á Íslandi. Með auknum lífeyrisréttundum væri ekki hvati fyrir almenning að spara aukalega. Einnig var talað um þekkingu almennings á hlutabréfamarkaðinum og að fjármálalæsi yfir höfuð væri ábótavant.

Samþykkt: 
  • 16.5.2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/33072


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BSc EddaSoley.pdf1,27 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna