en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/33093

Title: 
  • Title is in Icelandic Áhrif stökkbreytinga í HFE geninu á járnbúskap
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Inngangur: Járn er lífsnauðsynlegt en ef uppsöfnun járns er óeðlileg getur það valdið vefjaskemmdum. Járnofhleðsla er ástand þar sem of mikið af járni safnast í vefi líkamans. Algengasta ástæða járnofhleðslu eru tvær stökkbreytingar í HFE geninu, C282Y (Y) og H63D (Y), sem valda auknu frásogi á járni vegna minnkaðrar hepsidínframleiðslu. Einstaklingar með stökkbreytingu í báðum samsætum HFE gensins, sérstaklega C282Y stökkbreytingu, eiga hættu á að fá sjúkdóma tengda járnofhleðslu og kallast það þá járnhleðslukvilli. Ekki allir með arfgerðir járnofhleðslu fá ofhleðslu og aðeins hluti þeirra fær járnhleðslukvilla. Ástæður þess eru líklega fólgnar í erfðum og umhverfi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni HFE arfgerða á Íslandi og skoða áhrif þessara arfgerða á járnbúskap. Einnig var kannað hvort erfðaþættir tengdir járnbúskap hefðu áhrif á sýnd járnofhleðslu.
    Efni og aðferðir: Arfgerðarupplýsingar rúmlega 150.000 Íslendinga frá ÍE voru notaðar til þess að kanna HFE arfgerð. Rúmlega 4,4 milljónir blóðsýna frá LSH, FSA og Rannsóknarmiðstöðinni Mjódd frá 1990-2018 voru notaðar til þess að meta járnbúskap í arfgerðarhópum.
    Niðurstöður: Samsætutíðni C282Y var 6,6% og 12,5% hjá H63D. Marktækur munur var á öllum mæligildum tengdum járnbúskap hjá HFE arfgerðum miðað við villigerð. Munur á járnbúskap kynjanna innan arfgerða var marktækur og umtalsverður. Sýnd járnofhleðslu (ferritín > 400 μg/L) hjá Y/Y einstaklingum var 75% hjá körlum og 34% hjá konum (Y/D, kk = 31%, kvk = 10%) og hún var algengari og alvarlegri hjá eldri einstaklingum. Tveir erfðabreytileikar höfðu áhrif á líkur þess að hafa transferrínmettun > 50% en þeir voru í TMPRSS6 (verndandi í Y/wt) og IL6R (útsetjandi í Y/D).
    Ályktanir: Munur sást á járnbúskap allra HFE arfgerða. Y/Y karlar voru líklegastir til þess að fá járnofhleðslu en 75% þeirra höfðu merki um járnofhleðslu (miðað við ferritínmælingu) og 24% þeirra eldri en 40 ára höfðu mikla járnofhleðslu (sFerritin >1000 μg/L). Erfðaþættirnir sem fundust hafa báðir tengsl við stýringu á hepsidínframleiðslu lifrar og þannig áhrif á járnbúskap. Í ljósi þess hve há sýnd járnofhleðslu er hjá Y/Y einstaklingum er ástæða til þess að íhuga fyrirbyggjandi eftirlit á grundvelli arfgerðarupplýsinga.

Accepted: 
  • May 17, 2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/33093


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Jóhann Ragnarsson BS. ritgerð, Áhrif stökkbreytinga í HFE geninu á járnbúskap.pdf2,15 MBOpenComplete TextPDFView/Open
Yfirlýsing Jóhann.jpg36,05 kBLockedYfirlýsingJPG