Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/33257
Samfélög geta orðið fyrir margvíslegum áhrifum ferðamennsku og getur hún haft mikil áhrif á íbúa. Áhrif ferðamennsku snúa að efnahagnum, umhverfinu og félagsmenningarlegum þáttum. Lífsgæði heimamanna geta einnig orðið fyrir áhrifum ferðamennsku, bæði til hins betra og til hins verra. Áhrif ferðamennsku á heimamenn hefur töluvert verið rannsökuð en hvaða áhrif lífsgæði heimamanna verða fyrir hefur ekki verið mikið rannsakað hér á landi. Rannsókn þessi fjallar því um áhrif ferðamennsku og lífsgæði og er markmið hennar að átta sig á upplifunum og viðhorfi íbúa í Mývatnssveit vegna ferðamennsku og lífsgæðum þar að lútandi. Einnig er fjallað um ferðamennsku í Mývatnssveit, uppbygginguna sem hefur átt sér stað undanfarin ár og stefnumótun sveitarfélagsins í ferðamennsku. Tekin voru viðtöl við tvo Mývetninga og í framhaldi af þeim var mótuð könnun sem lögð var fyrir Mývetninga. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að Mývetningar eru jákvæðir gagnvart ferðamennsku vegna aukinna atvinnutækifæra. Helstu neikvæðu áhrif ferðamennsku sem heimamenn upplifa eru hættur í umferðinni, mannmergð, t.d. í verslun sveitarinnar, og ágangur á einkarými heimamanna. Helsti munur á milli lýðfræðilegra breyta fól í sér að þeir sem starfa í ferðaþjónustu eru jákvæðari gagnvart ferðamennsku en þeir sem gera það ekki.
Communities can experience variety of tourism effects that can have major influence on local people. The influence of tourism appears in the economy, the environment and on socialcultural factors. The local people quality of life can be affected by tourism, positively and negatively. The influence of tourism on local people has considerably been researched, but how the quality of the local people‘s life has not received much attention in Iceland. Thus, this research focuses on the impact of tourism and people‘s quality of life. Its aim is to understand the experiences and attitudes of locals in Mývatnssveit and the influences of tourism on their quality of life. Tourism in Mývatnssveit is also discussed, the development in recent years and the municipality planning of tourism. An interview was taken with two locals which results were used to construct a survey that was submitted to locals in Mývatnssveit. The results indicate that locals in Mývatnssveit are generally positive towards tourism due to increased job opportunities. The main negative sides are the dangers in the traffic, crowds in the local store and tourist intrusion into people‘s privat spaces. The main difference between demographic change was that those working in tourism are more positive towards tourism than those who do not.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Í verstu tilfellum kíkja ferðamenn á glugga - Hulda María Þorláksdóttir .pdf | 1,76 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing Hulda María Þorláksdóttir.pdf | 577,31 kB | Lokaður | Yfirlýsing |