en English is Íslenska

Thesis (Master's)

University of Iceland > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/33260

Title: 
  • Title is in Icelandic Hvernig meðferð hefur fólk með endurtekið þunglyndi sótt sér?
Degree: 
  • Master's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Þunglyndi getur verið þrálát geðröskun með hárri tíðni endurkomu lota. Samkvæmt árangursrannsóknum og klínískum leiðbeiningum er hugræn artferlismeðferð (HAM) og lyfjameðferð kjörmeðferðir við þunglyndi. Meðferð við þunglyndi hefur tiltölulega lítið verið rannsökuð hér á landi. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig meðferð fólk með endurtekið þunglyndi hefur sótt sér, og var sjónum beint sérstaklega að HAM. Aðferð: Þátttakendur voru 111 einstaklingar úr almennu þýði sem annað hvort höfðu fyrri sögu um þunglyndi (n=63) eða enga sögu um slíkt (n=48). Meðferðarsöguviðtal var tekið við þá um yfirstandandi og fyrri geðræna og sálfræðilega meðferðarsögu. Niðurstöður: Rannsókn þessi sýnir að ekki leiti sér allir aðstoðar við þunglyndi þrátt fyrir endurteknar lotur. Einungis helmingur þeirra sem leituðu sér aðstoðar fengu HAM. Tímalengd veittrar HAM-meðferðar var helmingi styttri en mælt er með og voru vísbendingar um að innihaldi meðferðar væri stundum ábótavant. HAM-hópmeðferð innihélt flesta þætti hefðbundinnar meðferðar, að undanskildri kortlagningu, sem frekar var að fá í einstaklingsmeðferð. Einstaklingsmeðferð virtist undirbúa fólk betur til að takast á við aðstæður þegar líðan versnar eftir að meðferð lýkur. Þátttakendur voru almennt jákvæðari í garð sálfræðimeðferðar en lyfjameðferðar. Umræða: Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að innihald og umfang þeirrar HAM meðferðar sem fólk með endurtekið þunglyndi hefur sótt sér hér á landi, getur vikið nokkuð frá viðmiðum klínískra leiðbeininga um kjörmeðferð við þunglyndi. Þörf er á frekari rannsóknum á aðgengi fólks að og gæðum þunglyndismeðferðar á Íslandi.

Accepted: 
  • May 28, 2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/33260


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Hvernig meðferð hefur fólk með endurtekið þunglyndi sótt sér?.pdf540.83 kBLocked Until...2024/05/31Complete TextPDF
Doc May 28 2019.pdf456.47 kBLockedYfirlýsingPDF