Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/33333
Fjöldi kínverskra ferðamanna sem kemur til Íslands hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Mörg fyrirtæki hér á landi sjá aukin tækifæri á markaði í þjónustu við kínverska ferðamenn. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða og skilja af hverju Kínverjar ferðast til Íslands og greina helstu þætti sem íslensk fyrirtæki þurfa að taka til skoðunar til þess að ná inn á kínverska ferðamannamarkaðinn. Í rannsókninni taka þrír viðmælendur þátt í hálfstöðluðum viðtölum. Viðmælendur eru sérfræðingar í kínverskum markaði innan íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja og hafa mikla innsýn í þessa markaði. Einnig er sett fram greining um bæði íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og kínversk ferðaþjónustufyrirtæki til að sýna fram á lykilþætti hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum sem þarf að betrumbæta til að ná aukinni samkeppnishæfni. Niðurstöður sýna fram á mikla aukningu kínverskra ferðamanna sem ferðast út fyrir eigin landsteina, að Ísland er orðið tískuáfangastaður fyrir kínverska ferðamenn og mikil aukning er í að þeir komi á eigin vegum til Íslands.
Kínverskir ferðamenn sem ferðast til Íslands leitast eftir náttúrufegurð og hafa kínverskir samfélagsmiðlar mikið verið notaðir til að deila ferðaupplifunum á Íslandi. Í rannsókninni er sýnt fram á að margir þættir eru mikilvægir fyrir fyrirtæki til þess að laða til sín kínverska ferðamenn. Upplýsingar verða gefnar um ferðavenjur, bókunarvenjur kínverskra ferðamanna, lykil að markaðsetningaraðferð og skilning á þörf Kínverja auk þess sem útskýrðir verða nánar þættirnir sem íslensk ferðaþjónustufyrirtæki þurfa að betrumbæta til að verða samkeppnishæf gagnvart kínverskum ferðaþjónustufyrirtækjum. Kína er stórt land og þar liggja mikil framtíðartækifæri fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki.
The number of Chinese tourists coming to Iceland has been increasing in recent years. Many companies in the country see increased opportunities in the market for service to Chinese tourists.
The aim of this research is to examine and understand why Chinese people travel to Iceland and analyze the main factors that Icelandic companies need to consider in order to enter the Chinese tourist market. In the study, three interviewees participate in semi-standard interviews. Interviewees are experts in the Chinese market within an Icelandic tourism service company and have great insight into these markets. It also sets out an analysis of both Icelandic tourism companies and Chinese tourism companies to demonstrate key factors for Icelandic tourism companies that need better improvement in order to achieve high competitive skills. The results show a great increase in Chinese tourists traveling outside their own country, that Iceland has become a fashion destination for Chinese tourists and there is a large increase in their coming to Iceland.
Chinese travelers traveling to Iceland are seeking natural beauty, and Chinese social media has been widely used to share the travel experiences in Iceland. The study shows that many factors are important for businesses to attract Chinese tourists. With information on travel trends, booking routines for Chinese tourists, key marketing methods and understanding of Chinese people's needs, the features of Icelandic tourism companies need to be clarified to become competitive with Chinese tourism companies. China is a large country and there is a great future opportunity for Icelandic tourism services companies.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Anton Jiaxu Wei.pdf | 611,7 kB | Lokaður til...01.01.2040 | Heildartexti | ||
Yfirlýsing.pdf | 1,67 MB | Lokaður | Yfirlýsing |