Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/33433
Verkefnið fjallar um hönnun á rafknúnu vélsleðafleti til ísetningar í sendibifreið. Þannig leysist vandamál við að koma vélsleða inn og út úr sendibíl eins og nemandi hafði rekið sig á af eigin reynslu. Hönnunin á að vera einföld og tiltölulega ódýr, samt á hún að vera sjálfvirk þannig að einungis þurfi að halda inni takka á fjarstýringu á meðan fletið gengur inn og út úr bílnum. Öryggisins vegna þarf að halda inni takkanum og fylgjast með búnaðinum á meðan.
Við hönnunina var reynt að halda halla sleðafletisins í lágmarki upp á öryggið. Það var gert með því að keyra það eins langt og mögulegt er út úr bílnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Vélsleðafleti.pdf | 3.01 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |