Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/33536
Hugbúnaðurinn er grunnur að kennsluhugbúnaði sem er útfærður sem fram- og bakendi fyrir andlitsgreiningu (e. Facial Expressions Analysis).
Verkefnið felur í sér að útfæra notendaviðmót sem tekur myndband af notanda við lausn verkefna. Myndbandið er því næst sent til greiningar af tauganetinu OpenFace.
Að greiningu lokinni koma til baka niðurstöður sem segja til um tilfinningar sem notandi sýndi í myndbandinu. Tilfinningarnar eru reiknaðar eftir svokölluðu Ekman líkani út frá svipbrigðum notanda. Einnig eru reiknuð gildi á valence út frá niðurstöðunum.
Markmið verkefnisins er að undirbúa grunn fyrir stærra kerfi þar sem hægt verður að prófa virkni mismunandi tauganeta. Þar má nefna net sem framkvæma sambærilegar greiningar en einnig annars konar greiningar á andlitsmyndum.
Slíka greiningu er í framtíðinni hægt að nýta meðal annars sem kennsluforrit, þar sem markmiðið er að veita einstaklingsbundna kennslu.
Þá væri hægt að sjá hvernig ákveðin verkefni vekja upp mismunandi tilfinningar hjá nemendum. Má þar nefna góða tilfinningu þegar lausn verkefna gengur vel en slæma þegar illa gengur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskýrsla_FacialExpressionsAnalysis.pdf | 329.13 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Áhættugreining.pdf | 66.3 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna | |
Framvinduskýrsla.pdf | 579.58 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna | |
Hönnunarskýrsla.pdf | 1.14 MB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna | |
Klasarit.pdf | 18.11 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
Product Backlog.pdf | 57.57 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna | |
Prófanir.pdf | 127.92 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna | |
Verklag og áhættugreining.pdf | 252.1 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna | |
beidni_um_lokun_lokaverkefnis.pdf | 417.4 kB | Opinn | Beiðni um lokun lokaverkefnis | Skoða/Opna |
Athugsemd: Óskað til þess að verkefnið sé læst í 2 ár. Sjá meðfylgjandi skjal með beiðni um lokun lokaverkefnis.