Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/33633
Í ummyndun íbúðarhúss Birkibóls í afdrep einræns rithöfundar er hið einstaka andrúmsloft, sem einkennir einkum yfirgefna staði, undirstrikað með því að halda í fortíðina og reisa á henni nýja framtíð. Þegar ný slétt steypan rís úr þeirri veðruðu og hrjúfu verður skilningurinn á liðnum tíma og sögunni djúpstæðari. Í sama anda er leitast við að viðhalda ríkjandi formlögun og einfaldleika í krosslaga grunnfleti upprunalega hússins. Nýtt innra skipulag er mótað eftir því sem talið er að falli að þörfum rithöfundarins, sem dvelur einsamall í húsinu. Útihúsin eru löguð að áhugamálum hans. Gamalli hlöðu er breytt í kvikmyndasal og fjárhúsum í skjól fyrir sauðfé sem gengur sjálfala.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hönnunargreining-Fanney.pdf | 15,35 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |