Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/33645
Á Birkibóli var stunduð skógrækt og er þar nú þétt birkikjarr. Við suðurhlið íbúðarhússins víkur skógurinn fyrir stöku reynitré. Leikskáldið Ellen er rótlaus en á Birkibóli fær hún tækifæri til þess að festa sterkar rætur líkt reynitréð en einnig að öðlast félagslegt stuðningsnet sem felst í rótarkerfi birkiskógarins. Nýr, léttur timburstrúktúr vex inni í gömlu steyptu skelinni af íbúðarhúsinu sem verður persónulegt athvarf Ellenar fyrir leikritaskrif og lestur. Ný, steypt skel hringar sig í kringum gömlu timburbyggingar útihúsanna sem verða að leiksmiðju. Dreginn er innblástur úr heimi leikhússins og í hönnuninni er samspil milli mannslíkama, hreyfingar og strúktúrs undirstrikað. Gamalt og nýtt mætist og verður eitt. Eldri rætur eru styrktar og nýjar spíra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Rótfesta.pdf | 19,15 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |