Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/33645
Rótfesta
Á Birkibóli var stunduð skógrækt og er þar nú þétt birkikjarr. Við suðurhlið íbúðarhússins víkur skógurinn fyrir stöku reynitré. Leikskáldið Ellen er rótlaus en á Birkibóli fær hún tækifæri til þess að festa sterkar rætur líkt reynitréð en einnig að öðlast félagslegt stuðningsnet sem felst í rótarkerfi birkiskógarins. Nýr, léttur timburstrúktúr vex inni í gömlu steyptu skelinni af íbúðarhúsinu sem verður persónulegt athvarf Ellenar fyrir leikritaskrif og lestur. Ný, steypt skel hringar sig í kringum gömlu timburbyggingar útihúsanna sem verða að leiksmiðju. Dreginn er innblástur úr heimi leikhússins og í hönnuninni er samspil milli mannslíkama, hreyfingar og strúktúrs undirstrikað. Gamalt og nýtt mætist og verður eitt. Eldri rætur eru styrktar og nýjar spíra.
| Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
|---|---|---|---|---|---|
| Rótfesta.pdf | 19,15 MB | Open | Report | View/Open |