Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/33670
Í þessari ritgerð er markmið mitt að rannsaka hlutverk myndskreytinga á auglýsinga- og hönnunarstofum og hvernig þróunin hefur orðið síðustu ár. Í rannsókn minni styðst ég m.a. við eigindlega rannsókn þar sem viðfangsefnið myndskreyting er rætt út frá hlutverki þess og þróun í gegnum árin. Rannsóknin byggist m.a. á viðtölum við starfandi hönnuði á auglýsingastofum og hönnunarstofum, sjálfstætt starfandi teiknara og hönnuði sem eiga sér áratuga reynslu í hönnun. Viðmælendur mína valdi ég út frá störfum þeirra og reynslu, en mörg hver hafa unnið við myndskreytingar í áraraðir. Viðtölin fóru ýmist fram á heimili eða vinnustað viðkomandi og í tölvupóst samskiptum. Niðurstöður viðtalanna eru mun fremur huglæg heldur en tölfræðileg.
Ég mun fjalla um sögu myndskreytinga, hvernig þær voru notaðar áður fyrr og þróunina fram til dagsins í dag. Ég rannsaka jafnframt vægi myndskreytinga og trúverðugleika í auglýsingum. Auk þess verður skoðað hvort teiknarinn hafi frelsi til að nota sinn persónulega stíl í myndskreytingu markaðsefnis og hvert samspil hönnunar og myndskreytinga er.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BríetGD._Vægi myndskreytinga.pdf | 15.86 MB | Lokaður | Heildartexti |